Dr Lisa Maria Wu hlýtur framgang í stöðu prófessors við sálfræðideild
Dr Lisa Maria Wu hlýtur framgang í stöðu prófessors við sálfræðideild. Matsnefndin, skipuð þeim Jóni Friðrik Jónssyni (formanni), Háskólanum í Reykjavík, Unni Valdimarsdóttur, Háskóla Íslands og Eveline Bleiker, Leiden University, komst einróma að þeirri niðurstöðu að Dr. Wu væri framúrskarandi rannsakandi á sinu sviði sem hefði haft alþjóðleg áhrif með framlagi sínu til fræðasamfélagsins.
Rannsóknir Lisu Mariu beinast að einstaklingum með krabbamein og aðra langvinna sjúkdóma. Hún hefur rannsakað áhrif krabbameinsmeðferðar á fólk s.s. tengt þreytu, breytingum á starfsemi heilans sem hafa áhrif á hugsun og hugræna færni, svefntruflanir og þunglyndiseinkenni, auk undirliggjandi þátta sem valda þessum einkennum. Hún hefur einnig þróað meðferðarúrræði fyrir krabbameinssjúklinga sem byggð eru á rannsóknum hennar, m.a. ljósameðferð og íhlutanir sem byggja á dægursveiflum til að draga úr síðbúnum áhrifum krabbameins. Þá hefur hún leitt þróun og prófanir á taugasálfræðilegu endurhæfingarúrræði sem kallast ImPACT (I'm Aware: Patients and Carers Together), með stuðningi frá dönsku og íslensku krabbameinsfélögunum.
Hún hefur einnig verið afar farsæl við öflun rannsóknastyrkja. Hún hlaut sinn fyrsta styrk sem aðalrannsakandi árið 2012 og samanlagt nema rannsóknastyrkir hennar nú yfir 3,3 milljónum evra sem aðalrannsakandi. Þar á meðal eru stórir styrkir frá bandarískum, dönskum og íslenskum krabbameinsfélögum auk National Cancer Institute hjá National Institutes of Health í Bandaríkjunum.
Einnig hefur hún lokið yfir 230 klukkustundum í formlegri kennslufræðilegri þjálfun á árunum 2016–2023, meðal annars í blandaðri kennslu og leiðsögn, upplýsingatækni í kennslu og mentorþjálfun. Hún hefur aðallega kennt klíníska taugasálfræði og svefn og svefntruflanir á grunn-, meistara- og doktorsstigi, auk þess að halda vinnustofur fyrir nýdoktora og heimilislækna. Auk kennslu hefur hún komið að þróun og samhæfingu námskeiða á sínu sérsviði á meistara- og doktorsstigi og tók nýverið þátt í þróun sérnáms í klínískri taugasálfræði við Háskólann í Reykjavík. Árin 2017 og 2018 hlaut hún verðlaunin Outstanding Teacher Award for Health and Society Small Group við Northwestern University Feinberg School of Medicine.
Þá hefur Lisa Maria verið virk í að kynna rannsóknir sínar á ráðstefnum og hefur flutt alls 38 ráðstefnuerindi, þar af 24 sjálf. Hún hefur flutt lykilfyrirlestra, boðserindi og gestafyrirlestra við nærri 40 tilefni, skipulagt alþjóðleg vísindamót, vinnustofur og málstofur og lagt sitt af mörkum til miðlunar þekkingar, meðal annars í fjölmiðlum og almennum fræðsluritum.
Hún hefur einnig verið verkefnastjóri í fjölmörgum rannsóknarhópum erlendis, gegnt stöðu stjórnarmanns, stofnað til rannsóknarsamstarfs, verið ritstjóri fræðitímarita og prófdómari í doktorsritgerðum.
Dagsetning
Deila