Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
13. júní 2025

Ein af frumskyldum hvers samfélags að vernda yngstu þegnana

Vernd barna gegn ofbeldi á heimili var yfirskrift heilsdagsráðstefnu sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík fimmtudaginn 5. júní 2025. Ráðstefnan var afar vel sótt. Skráðir voru um það bil 400 þátttakendur sem ýmist komu á staðinn eða hlustuðu í streymi.

Lagadeild Háskólans í Reykjavík stóð fyrir ráðstefnunni í samvinnu við Ríkislögreglustjóra, Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar, Lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, heilbrigðisráðuneytið, Barna- og fjölskyldustofu, Barnahús, Kvennaathvarfið og Bjarkarhlíð.

Dr. Gunnar Þór Pétursson, forseti lagadeildar, dómsmálaráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Dr. Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, forseti Hæstaréttar Íslands, Benedikt Bogason og Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Dómsmálaráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, ávarpaði ráðstefnugesti í upphafi og forseti Hæstaréttar Íslands, Benedikt Bogason, sá um fundarstjórn.

Skráðir voru um það bil 400 þátttakendur sem ýmist komu á staðinn eða hlustuðu í streymi.

Erindi héldu Auður Magnúsdóttir sálfræðingur og verkefnastýra barnastarfs í Kvennaathvarfinu, Elísabet Gunnarsdóttir félagsráðgjafi og deildarstjóri hjá Barnavernd Reykjavíkur, Eygló Harðardóttir verkefnastjóri afbrotavarna hjá Ríkislögreglustjóra og formaður aðgerðahóps vegna ofbeldis gegn börnum, Jenný Kristín Valberg teymisstýra Bjarkarhlíðar, dr. María Rún Bjarnadóttir fulltrúi eftirlitsnefndar Evrópuráðsins með Istanbúl-samningnumum (GREVIO), Marta Kristín Hreiðarsdóttir deildarstjóri í Upplýsinga- og áætlanadeild Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, Ólöf Ásta Farestveit forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, dr. Paola Cardenas sálfræðingur í Barnahúsi,  Hildur Sunna Pálmadóttir sviðsstjóri ákærusviðs hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, dr. Svala Ísfeld Ólafsdóttir dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík og  Þóra Jónasdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. 

Dr. Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, hélt erindi.

Þessi orð eru höfð eftir Svölu Ísfeld Ólafsdóttur, sem fjallaði um vernd barna gegn kynferðisofbeldi í erindi sínu;

Ráðstefna af þessu tagi minnir okkur á að ein af frumskyldum hvers samfélags er að vernda yngstu þegnana. Sífellt er leitað leiða til að tryggja öryggi barna og vernda þau gegn ofbeldi. Þrátt fyrir að margt hafi áunnist er enn að verk að vinna. Ofbeldi er ein stærsta ógn sem steðjar að börnum hér á landi.

13. júní 2025
Nýjustu fréttirnar