Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
2. júlí 2025

Einstakur heiður að leiðbeina næstu kynslóð vísindafólks

Svo óvenjulega vildi til að sex nemendur af þeim 11 sem útskrifuðust með doktorspróf nú í júní frá tölvunarfræðideild höfðu sama leiðbeinanda. Anna Sigríður Islind, prófessor við tölvunarfræðideild, var aðalleiðbeinandi fjögurra og meðleiðbeinandi tveggja auk þess að vera í doktorsnefnd fyrir tvo doktorsnema í viðbót.

Anna Sigríður segir það gefandi og einstakan heiður að fá að leiðbeina næstu kynslóð vísindafólks.

Það að  leiðbeina doktorsnemum gefur mikið, enda er dásamlega gaman að fylgja fólki eftir sem hefur metnað, heilindi, mikla sýn, djúpa þekkingu og gott hjarta. Ég hef verið svo heppin að leiðbeina einstaklega færum doktorsnemum sem öll skara fram úr á sinn hátt. Mér þykir svo vænt um þetta dásamlega og framúrskarandi fólk og finnst ég ótrúlega lánsöm að fá að fylgja þeim út í lífið.

Viðfangsefni doktorsnemanna eru margbreytileg en rannsóknir þeirra eiga það sameiginlegt að snúa að þeim málefnum sem efst eru á baugi í dag í samfélaginu. Má þar m.a nefna hvernig megi bæta umhverfi og öryggi sjúklinga, efla svefnrannsóknir um heim allan og draga úr matarsóun.

  • Steinunn Gróa Sigurðardóttir; Doktorsritgerð hennar ber titilinn Living with technology: digital mental health and patient flourishing. Um er að ræða verkefni sem mun umbylta geðheilbrigðismálum á Íslandi með því að nýta gögn úr snjallúrum og smáforriti til að auðga þjónustu við fólk með geðhvarfasýki eða geðrofssjúkdóma.  Steinunn mun halda sínum rannsóknum áfram í HR meðfram því að vera forstöðukona grunnnáms í tölvunarfræðideild.
  • Bjarki Freyr Sveinbjarnason; Doktorsritgerð hans ber titilinn Scaling data governance through automation and dynamic data spaces. Svefnrannsóknir um heim allan munu njóta góðs af uppgötvunum hans en hann hannaði og þróaði þá stafrænu gagnainnviði sem Svefnbyltingin keyrir sína gagnasöfnun sína í gegnum um gjörvalla Evrópu. Bjarki gekk til liðs við Carbfix eftir að doktorsnáminu lauk.
  • Lilja Guðrún Jóhannsdóttir; Doktorsritgerðin hennar ber titilinn Ensuring patient safety through digital health technologies. Með rannsóknum hennar var unnið markvisst að því að auka öryggi sjúklinga í heilbrigðiskerfinu með stafrænni heilbrigðistækni. Uppgötvanir hennar munu vera leiðandi fyrir hönnun og þróun stafrænna innviða sem snúa að sjúklingum og vinnu heilbirgiðisstarfsfólks. Lilja er leiðtogi á Landspítalnum, einmitt í því hlutverki að hanna og þróa stafræna heilbrigðistækni sem snýr að sjúklingum, og passa upp á öryggi þeirra.
  • Luka Biedebach; Doktorsritgerð hennar ber titilinn New pathways for unsupervised machine learning in digital health: applications and future potentials for sleep. Hún nýtti vélrænt gagnanám á svefngögn og gerði uppgötvanir bæði um svefn barna sem og fullorðinna en í leiðinni, nýjar uppgötvanir um nýtingu vélræns gagnanáms. Luka gekk inn í nýdoktorsstöðu í rannsóknarverkefni í HR og verður áfram í tölvunarfræðideild að umbylta nýtingu snjalltækja til að mæla svefn, með nýtingu vélræns gagnanáms.
  • Ioana Visescu ; Doktorsritgerðin hennar ber titilinn Complicated, by design: the dynamic use of a user-centered design process. Verkefnið snýr að því að hafa notendur með í hönnunarferlinu þegar hugbúnaðarlausnir eru hannaðar. Marta Kristín Lárusdóttir var aðalleiðbeinandi og Anna Sigríður meðleiðbeinandi. Ioana tók á dögunum við nýdoktorsstöðu hjá háskólanum í Luxemburg.
  • Camilla Carpinelli ; Doktorsritgerðin hennar ber titilinn One small step for customers, one giant leap for the food system: analyzing purchasing trends for increasing sustainability and reducing food waste. Verkefnið snýst um að greina kauphegðun fólks til að auðga skilning okkar á því hvernig við getum tekið mikilvæg skref í áttina að aukinni sjálfbærni og minnkaðri matarsóun. María Óskarsdóttir var aðalleiðbeinandi fyrir hana og Anna Sigríður meðleiðbeinandi. Camilla tók við stöðu sérfræðings í gagnavísindum hjá Veitum eftir doktorsnámið.

Anna Sigríður segir nýju doktorana alla hafa unnið markvisst að því í gegnum vísindauppgötvanir sínar að gera heiminn að betri stað. Þau hafi unnið rannsóknir sínar faglega og af heilindum og fengið greinar um uppgötvanir sínar birtar í heimsþekktum vísindaritum. Fróðlegt verði að fylgjast með þeim í áframhaldandi rannsóknum;

Ég er svo ánægð með hvað þau eru öll að feta sína eigin braut eftir doktorsnámið, sum áfram í háskólaumhverfinu, önnur ekki. Það sýnir kraftinn í þeim. Svo má nú bæta við að ekkert þeirra virðist vera búið að fá leið á mér enn þá, þannig að ég er ennþá að vinna með þeim öllum í að koma allskonar vísindagreinum á legg á hliðarlínunni.

Á myndinni eru (frá vinstri): Bjarki Freyr Sveinbjarnarson Steinunn Gróa Sigurðardóttir, Lilja Guðrún Jóhannsdóttir, Anna Sigríður Islind, Camilla Carpinelli, Benedikt Hólm (sem Anna Sigríður var í doktorsnefndinni hjá), Luka Biedebach og Ioana Visescu

2. júlí 2025
Nýjustu fréttirnar