Endurnýjaður samstarfssamningur JBT Marel og Háskólans í Reykjavík
Endurnýjaður hefur verið samstarfssamningur milli JBT Marel og Háskólans í Reykjavík til næstu þriggja ára. Markmið samningsins er að efla áframhaldandi samstarf aðila með sérstaka áherslu á fjölbreytileika í tæknigreinum og aukinn áhuga ungs fólks á framhaldsmenntun.
Samstarfið snýr annars vegar að átaksverkefninu Stelpur, stálp og tækni, sem HR hefur staðið fyrir hér á landi um árabil, og hins vegar verkefninu Strákar og stálp í háskóla sem miðar að því að hvetja stráka og stálp til að sækja sér framhaldsmenntun.
Verkefnið Stelpur, stálp og tækni er haldið að fyrirmynd alþjóðlega dagsins Girls in ICT Day, sem skipulagður er af Alþjóðafjarskiptasambandinu (ITU), stofnun Sameinuðu þjóðanna á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni. Í tengslum við verkefnið er stelpum og stálpum í 9. bekk grunnskóla boðið í Háskólann í Reykjavík þar sem þau taka þátt í fjölbreyttum vinnustofum í samstarfi við tæknifyrirtæki.
Þátttakendur fá jafnframt tækifæri til að kynnast störfum í tæknigeiranum, þar sem konur og kvár sem starfa hjá fyrirtækjunum taka á móti hópunum, og veita innsýn í starfsemi þeirra og þau tækifæri sem bjóðast að loknu tækninámi. JBT Marel hefur verið bakhjarl verkefnisins um árabil og hefur stuðningur fyrirtækisins reynst lykilatriði í að efla verkefnið og með því brjóta niður staðalímyndir og varpa ljósi á fjölbreytileika innan tæknigreina.
Strákar og stálp í háskóla er skipulagt að fyrirmynd fyrrnefnds átaks og beinist sérstaklega að því að vekja áhuga stráka í efri bekkjum grunnskóla á áframhaldandi námi. Verkefnið var haldið í fyrsta sinn á síðasta ári og hefur fest sig í sessi sem mikilvæg viðbót. Á viðburðinum fá nemendur að taka þátt í vinnustofum, kynnast fyrirtækjum og hlýða á hvetjandi fyrirlestra frá fyrirmyndum úr bæði háskólasamfélaginu og atvinnulífinu.
Með endurnýjun samningsins skapast traustur grunnur til að halda áfram þróun og framkvæmd þessara mikilvægu verkefna á komandi árum.
Dagsetning
Deila