Fagnað eftir farsælan feril við tæknifræðideild
Jens Arnljótsson kenndi nýverið sinn síðasta kennslutíma á löngum og farsælum ferli við tæknifræðideild HR. Jens byrjaði að kenna í Tækniskóla Íslands í kringum 1990, þá sem stundarkennari í tæknifræði, hann varð síðan deildarstjóri við iðnaðartæknifræðinám skólans og tók síðan við véladeildinni. Árið 2002 varð Tækniskóli Íslands að Tækniháskóla Íslands og færðist þá Jens áfram þangað og síðan yfir í HR árið 2005 þar sem hann hefur kennt tæknifræðinemum síðan.
Í gegnum öll þessi ár hefur verið gaman að kenna og sérstaklega skemmtilegt þegar ég hef fylgst með nemendum sem ná að vinna sig upp og blómstra í náminu. Ég er í góðum tengslum við fyrrum nemendur og fæ fréttir af þeim. Margir þeirra starfa á verkfræðistofum og ég gæti líklega drukkið all marga kaffibolla ef ég færi hringinn í heimsókn, segir Jens sem var fagnað óvænt af fyrrum og núverandi nemendum og starfsfólki við lok síðasta kennslutímans.
Brutust út mikil fagnaðarlæti þegar Jens gekk út úr stofunni og hefur myndband af viðburðinum á samfélagsmiðlum HR farið á flug. Var að Jens vonum glaður með þessa uppákomu en um leið hógvær yfir tilstandinu.

Þessi óvænti viðburður er virðingarvottur við mig en segir ekkert endilega að ég sé betri kennari en annar. Ég hugsa að ég hafi nú samt verið ágætlega vel liðinn en auðvitað er maður mannlegur og gat verið bæði svolítið pirraður og stundum góður. Svo geri ég kröfur til nemenda minna en reyni að passa mig að vera sanngjarn líka, segir Jens.
Upphaflega ætlaði Jens að verða vélstjóri, en fann fljótt að tæknifræðin átti vel við hann. Á árunum 1987 til 1990 var erfitt fyrir tækni- og verkfræðinga að fá vinnu og var því ávinningur að fá stundakennslu við Tækniskóla Íslands og í framhaldi fullt starf og mögulega hafi það verið lán í óláni að enda í kennslunni.
Þegar ég var að byrja á verkfræðistofu var maður að teikna á stór teikniborð, fyrst með blýanti og svo tússa hugsaðu þér, núna er þetta allt bara í tölvuforritum og flottar myndir sem er hægt að gera, segir Jens að lokum.
HR þakkar Jens fyrir allt hans framlag og óskar honum gæfu og velfarnaðar.
Dagsetning
Deila