Festi verður nýr bakhjarl verkefnisins Strákar og stálp í háskóla ásamt JBT Marel
Háskólinn í Reykjavík og Festi hafa skrifað undir samstarfssamning um verkefnið Strákar og stálp í háskóla. Festi er nýr bakhjarl verkefnisins ásamt JBT Marel sem kom að stofnun verkefnisins með HR.
Við hjá Festi erum stolt af því að styðja við verkefnið Strákar og stálp í háskóla ásamt JBT Marel en gögn sýna að drengir eru í auknum mæli að dragast aftur úr í námi og síður að sækja sér framhaldsmenntun. Það er þróun sem við verðum að taka alvarlega og bregðast við. Með verkefnum sem þessu getum við vonandi kveikt frekari áhuga, aukið sjálfstraust og sýnt skýrt fram á þau fjölbreyttu tækifæri og leiðir í lífinu sem menntun opnar fyrir. Fyrir Festi er þetta ekki aðeins samfélagslegt verkefni heldur einnig fjárfesting í framtíðinni, í hæfni, nýsköpun og öflugum mannauði sem mun móta íslenskt atvinnulíf til lengri tíma.
Segir Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi.
Ötull stuðningur fyrirtækjanna tryggir að viðburðurinn Strákar og stálp í háskóla festist í sessi. Viðburðurinn er skipulagður með það að markmiði að vekja áhuga drengja á því að sækja sér framhaldsmenntun og auka þátttöku þeirra í námi til framtíðar.
Strákar og stálp í háskóla fer fram í maí en þá er strákum og stálpum í 9. bekk í grunnskóla boðið í Háskólann í Reykjavík til að veita innsýn í háskólaumhverfið, kynna fyrirmyndir og þau tækifæri sem bjóðast á vinnumarkaði að námi loknu. Skipulagðar eru fjölbreyttar vinnustofur í HR og valin fyrirtæki heimsótt auk þess sem fyrirmyndir úr háskólaumhverfinu og atvinnulífinu flytja hvetjandi fyrirlestra.
Dagsetning
Deila