Fjölbreytt verkefni við HR hlutu styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna
Nemendur við Háskólann í Reykjavík munu í sumar vinna að rannsóknarverkefnum á vegum HR og annarra stofnana og fyrirtækja með stuðningi Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Alls hlutu sex verkefni við HR fyrir allt í allt átján nemendur styrk úr sjóðnum í ár.
Rannsóknarverkefnin eru afar fjölbreytt. Verkefnið Advancing anatomy education with VR and 3D models undir leiðsögn Dr. Paolo Gargiulo, prófessors við verkfræðideild, hefur það að markmiði að þróa vettvang á netinu sem sameinar sjúklingamiðuð þrívíddarlíkön og sýndarveruleikaherma til að efla heilbrigðismenntun í íslenskum háskólum.
Samningur við Landspítalann gerir það kleift að safna segulómunar- og sneiðmyndagögnum (MRI/CT) frá ýmsum líkamshlutum til að byggja upp yfirgripsmikinn gagnagrunn sem veitir kerfisbundna þrívíddarsýn af mannslíkamanum eftir líkamshlutum.
Samfélagsmiðlanotkun ungmenna og markmiða- og hvatakerfi fyrir þau sem glíma við fíkn
Verkefnið Eiginleikar fyrir markmiða- og hvatakerfi í Bata undir leiðsögn Dr. Stefáns Ólafssonar, lektors við tölvunarfræðideild, er unnið í samstarfi við fyrirtækið Rekovy og meðferðarstofnanir á borð við SÁÁ.
Nemendur koma að þróun nýrra eiginleika á borð við persónumiðað hvatakerfi og markmiðastetningu í smáforritinu Bata ásamt framkvæmd notendaprófana. Verkefnið nýtir nýjustu nálganir úr leikjavæðingu, atferlishagfræði og notendamiðaðri hönnun og er markmiðið að auka meðferðarheldni og bæta lífsgæði þeirra sem glíma við fíkn.
Verkefnið Heilavirkni ungmenna við samfélagsmiðlanotkun er undir leiðsögn Dr. Þórhildar Halldórsdóttur og Dr. Hönnu Steinunnar Steingrímsdóttir, dósenta við sálfræðideild.
Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvaða áhrif samfélagsmiðla- og tölvuleikjanotkun hefur á heilavirkni 10-16 ára ungmenna, en áhrif skjánotkunar á heilann í ungmennum hafa lítið verið könnuð. Nemendurnir sem munu vinna við verkefnið munu m.a. sinna forritunarvinnu og úrvinnslu gagna, öflun þáttakenda og gagnasöfnun.
Blokkarkeðjur, merkjasamruni og Smali
Verkefnið Educational Blockchain: A Step Towards Equality er undir leiðsögn Hafsteins Hjartarsonar, doktorsnema við tölvunarfræðideild, og er unnið í samstarfi við Háskóla Íslands og Rauða krossinn, og með þátttöku Stafræns Íslands og Fjártækniklasanum.
Verkefnið miðar að því bregðast við þeim áskorunum sem blasa við háskólastofnunum þegar kemur að því að gefa út útskriftarverkefni á pappír, tölvupósti og PDF-skjölum. Ferlin við útgáfuna skapa óþarfa vinnuálag, eru hægvirk og byggja á miðlægum gagnagrunnum, sem eykur hættu á gagnatapi og fölsunum. EduChain bregst við þessum áskorunum með því að nýta blokkarkeðjutækni til að vista akademísk gögn og byggir á fyrri lausnum eins og BlockCert frá MIT og EDEBO kerfi Úkraínu, en tryggir jafnframt kvarðanleika á alþjóðlegum vettvangi.
Verkefnið Neural Architecture Search for Signal Fusion er undir leiðsögn Maríu Óskarsdóttur, dósents við tölvunarfræðideild. Lífeðlisfræðileg merkjagögn eru flókin og erfitt að greina þau en djúpnám er oft notað til að finna mynstur í slíkum gögnum. Það getur þó enn verið áskorun að sameina mörg merki í eitt líkan og er merkjasamruni (e. signal fusion) aðferð til til að samþætta fjölda af lífeðlisfræðilegum merkjum í eitt djúpnámslíkan. Slíkt krefst flókinnar hönnunar, sem er bæði tímafrek og sértæk.
Í þessu verkefni verður notast við Neural Architecture Search (NAS) til að sjálfvirknivæða þessa samrunaferla og spá fyrir um svefnstig út frá svefnmæligögnum. Nemendurnir munu útfæra NAS á Elju sem er ofurtölva háskólanna á Íslandi og setja þar upp tilraunamælingar og sjálfvirka vinnuáætlun.
Þá fékk verkefnið Smali undir leiðsögn Torfa Þórhallssonar, lektors við verkfræðideild, einnig styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Dagsetning
Deila