Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
17. janúar 2025

Fjöldi rannsóknarverkefna við HR hljóta styrk frá Rannís

Rannsóknasjóður Íslands (Rannís) tilkynnti í gær hvaða vísindamenn hljóta styrki úr sjóðnum fyrir árið 2025 til að þróa rannsóknarverkefni sín. Úthlutað er úr Rannsóknasjóðnum ár hvert og styrkir sjóðurinn verkefni á öllum sviðum vísinda, allt frá styrkjum til doktorsnema til öndvegisstyrkja.

Á meðal verkefna sem vísindafólk Háskólans í Reykjavík vinnur að og hlutu styrki eru rannsóknir á örplasti í jöklum, uppbyggingu og beitingu athyglisstjórnunar við markaðssetningu á heilsu og sjálfbærni og áhrif eldgosa og umbrota á andlega líðan björgunarsveitarfólks á Íslandi.

Alls bárust 381 gildar umsóknir í Rannsóknasjóð og voru 64 þeirra styrktar eða tæp 17% umsókna. Styrkveitingar til nýrra verkefna nema á þessu ári rúmum 1,1 milljarði króna, en þar sem rannsóknarverkefnin eru almennt til þriggja ára verður heildarkostnaður vegna þeirra tæplega 3,2 milljarðar króna á árunum 2025-2027, að því er kemur fram í tilkynningu Rannís.

Eftirfarandi rannsóknarverkefni við HR hlutu styrk að þessu sinni:

Verkefnisstyrkir
  • Magnús Már Halldórsson, tölvunarfræðideild: Flækjustig netalitunar
  • Christoph Lohrmann, tölvunarfræðideild: Um framkvæmd á safnbreytuvali og beitingu þess við spár á hlutabréfamarkaði
  • Hlynur Stefánsson, verkfræðideild: Örplast í jöklum
  • Valdimar Sigurðsson og Jacob Lund Orquin, viðskipta- og hagfræðideild: Uppbygging athyglisstjórnunar og beiting hennar við markaðssetningu á heilsu og sjálfbærni
  • Sigríður Björk Þormar og Linda Bára Lýðsdóttir, sálfræðideild: Áhrif eldgosa og umbrota á andlega líðan björgunarsveitarfólks á Íslandi
Nýdoktorsstyrkir
  • Rosemary Erin Haskell, sálfræðideild: Vísindaleg nálgun byggð á gögnum til að skilja kynbundin viðbrögð við mótlæti snemma á lífsleiðinni
  • Cecilia Rose Collins, verkfræðideild: Flæktir lífsþræðir: Ný sjónarhorn í faraldra og samhliða næringarskort með þrívíddar myndgreiningu á Norðurslóðum
Doktorsnemastyrkir
  • Reed Patrick Acton, tölvunarfræðideild: Frá hlutum til mótanna milli hluta til að upplýsa um fínni uppbyggingu umraðanna
  • Vasiliki Kyriakou, tölvunarfræðideild: Áhrif takmarkaðrar brigðgengni á tjáningargetu og afstæðan flækjustig sjálfvirka með takmarkað minni
  • Bahadir Turkyilmaz, tölvunarfræðideild: Hitaeiginleikar og lagrangísk dreifing í blönduðum ókyrrð
  • Helena Rakel Hannesdóttir, lagadeild: Verndun umhverfis sjávar gegn mengun af völdum loftslagsbreytinga á grundvelli hafréttar
17. janúar 2025
Nýjustu fréttirnar