Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
28. ágúst 2026

FLIKK í virtu vísindariti 

FLIKK verkefnið fékk á dögunum birta grein í hinu virta vísindariti Child and Adolescent Mental Health. FLIKK, sem stendur fyrir ForeldraLausn og Internetmeðferð fyrir Kvíðna Krakka, er internet meðferð fyrir börn með kvíðavanda og er hugsuð fyrir foreldra og aðra umönnunaraðila barna á aldrinum 5-12 ára.  

„Það er mikil viðurkenning fyrir rannsóknarverkefnið að reynslan af FLIKK sé birt í jafn virtu alþjóðlegu vísindariti og Child and Adolescent Mental Health. Þar er ekki aðeins verið að horfa til þess út á hvað meðferðin gengur, heldur hvernig hægt er að koma gagnreyndri meðferð alla leið inn í raunverulega heilbrigðisþjónustu.  

Birtingin hjálpar okkur að koma þeirri þekkingu á framfæri við fagfólk og rannsakendur víða um heim og sýnir að reynslan frá Íslandi getur haft gildi langt út fyrir okkar litla heilbrigðiskerfi,“ segir Brynjar Halldórsson, dósent við sálfræðideild HR sem fer fyrir FLIKK-teyminu. 

Greinina í Child and Adolescent Mental Health má lesa  hér.

FLIKK teymið Anna Sigríður Islind, Brynjar Halldórsson og Hafrún Kristjánsdóttir.

Brautryðjandi meðferð og aðgangur foreldra

FLIKK meðferðin var þróuð af sérfræðingum í meðferð kvíðavanda hjá börnum við Háskólann í Reading og Oxford og var fjármögnuð af the National Institute for Health Research (NIHR). Um er að ræða íslenska útgáfu af meðferðinni sem hefur verið unnin af sérfræðingum í kvíðavanda barna hjá HR, með styrk frá heilbrigðisráðuneytinu. 

„FLIKK verkefnið sýnir að stafrænar geðheilbrigðislausnir skila litlu ef innleiðingin er ekki jafn vel hugsuð og úrræðið sjálft. Það sem gerir FLIKK brautryðjandi er ekki aðeins meðferðin sjálf, heldur hvernig foreldrar kvíðinna barna fá aðgang að henni. 

Foreldrar geta sótt um aðgang að meðferðinni beint á netinu, án tilvísunar frá heilbrigðisstarfsmanni. Í kjölfarið fá þeir stutt símtal við klínískan sálfræðing á heilsugæslu sem metur hvort úrræðið henti fjölskyldunni.  

Markmiðið er að gera fyrsta skrefið eins einfalt og mögulegt er, án þess að fórna klínísku mati og öryggi. Þannig er þjónustan hluti af heilsugæslunni sjálfri, fremur en sjálfstætt stafrænt úrræði sem fjölskyldur þurfa að finna og rata um á eigin spýtur,“ segir Brynjar um verkefnið.

28. ágúst 2026
Nýjustu fréttirnar