Forritun veitir einnig þjálfun í að takast á við flókin vandamál með þrautseigju og skapandi hugsun
Forritunarkeppni framhaldsskólanna 2026 var haldin laugardaginn 7. mars í Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Akureyri. Í HR kepptu 45 lið með 102 þátttakendur innanborðs. HR hefur staðið fyrir Forritunarkeppni framhaldsskólanna í fjölmörg ár og hefur ásókn í keppnina aukist ár frá ári, enda til mikils að vinna. Að þessu sinni er Syndis styrktaraðili keppninnar og hélt fulltrúi fyrirtækisins erindi fyrir keppendur á meðan beðið er eftir úrslitum.
Í fyrsta sæti í Alfa deild var liðið ACMaxers skipað nemendum frá Tækniskólanum, Menntaskólanum í Reykjavík og Landakotsskóla, í fyrsta sæti í Beta deild var liðið XY skipað nemendum frá Verzlunarskóla Íslands og í fyrsta sæti í Delta deild varð liðið Timaur frá Menntaskólanum á Egilsstöðum.
Viðburðurinn er meðal stærstu viðburða sem skipulagðir eru innan tölvunarfræðideildar HR og lukkaðist vel að vanda.
Það er frábært að sjá áhuga framhaldsskólanema á forritun og í keppninni voru lið frá skólum alls staðar af landinu. Forritun er ekki bara tæknileg kunnátta heldur leið til að þjálfa sig í að takast á við flókin vandamál með þrautseigju og skapandi hugsun. Tölvunarfræði gefur okkur nýja leið til að leysa verkefni og nýtist víða í samfélaginu, og þrátt fyrir miklar framfarir í tækni munum við alltaf þurfa fólk sem getur skilið vandamál og þróað nýjar lausnir
Segir Henning Arnór Úlfarsson, forseti tölvunarfræðideildar HR. Arnar Bjarni Arnarson, formaður Keppnisforritunarfélags Íslands tekur undir þetta.
Keppnin fór vel í ár og við sjáum fram á að senda nokkra nemendur út á alþjóðlegar keppnir í Finnlandi, Ítalíu og Úsbekistan í ár. Keppnisþátttaka svo og kennsla sem við munum bjóða í HR til undirbúnings undirbýr nemendur í rökhugsun og gerir þeim kleift að leysa verkefni sem eru þeim algjörlega ókunnug. Þá erum við ánægð að sjá aukna þátttöku utan höfuðborgarsvæðisins og að fleiri skólar séu byrjaðir að sýna keppninni áhuga. Einnig viljum við þakka fyrir stuðninginn frá Háskólanum í Reykjavík og Syndis .
Segir Arnar Bjarni en Keppnisforritunarfélag Íslands mun halda úti frírri kennslu í forritun og verkefnalausnum á þriðjudögum kl. 19:00 - 20:30 og laugardögum kl. 11:45 - 14:00 í Háskólanum í Reykjavík til að betur undirbúa afrekskeppendur svo og aðra áhugasama nemendur. Hér má sjá keppnirnar sem eru í boði eru framundan.
Arnar Bjarni vekur sérstaka athygli á Evrópskum Ólympíuleikum Stelpna og vill nota tækifærið til að hvetja fleiri stelpur til að taka þátt á þeim spennandi vettvangi. Í fyrra hlaut Eva Sóllilja Einarsdóttir brons medallíu þar en hún keppti ein og varð í fyrsta sæti í Beta-deildinni í fyrra.
Metþátttaka austanlands
Háskólinn á Akureyri er í forsvari fyrir keppnina á norður- og austurlandi en HA og HR eiga í samstarfi um tækninám. Austanlands var metþátttaka, bæði hvað varðar liðafjölda og keppendur, en þar kepptu fimm lið. Á Akureyri voru skráð 15 lið og samtals 47 keppendur fyrir austan og norðan.
Liðin samanstóðu af nemendum úr Menntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Egilsstöðum og Verkmenntaskóli Austurlands, auk þess sem þrjú lið frá Kvennaskólanum í Reykjavík kepptu á Akureyri.
Við fengum til okkar óvenju stóran hóp nemenda frá MA en Ingvar stærðfræðikennari þar hefur staðið sig sérstaklega vel í því að hvetja nemendur sína til að taka þátt. Keppnin hefur verið haldin á Akureyri í yfir tíu ár eða allt frá því að tölvunarfræði samstarf HA og HR hófst. Það felur í sér að hægt er að stunda þriggja ára B.S nám í tölvunarfræði HR á Akureyri í samstarfi við HA.
Segir Ólafur Jónsson, verkefnastjóri tölvunarfræðinámsins við HA og bætir við að líklega hafi tölvunarfræðinám sjaldan verið jafn viðeigandi og einmitt nú. Þörf sé á fólki sem kunni að temja gervigreindina okkur til góðs og nýta allar þær tækninýjungar sem flæða yfir samfélagið.
Dagsetning
Deila