Forsetalistaathöfn Háskólans í Reykjavík
Nemendum veitt viðurkenning fyrir framúrskarandi námsárangur á vorönn 2023

Nemendur sem veitt var viðurkenning fyrir framúrskarandi árangur á vorönn 2023.
Forsetalistaathöfn Háskólans í Reykjavík var haldin fimmtudaginn 31. ágúst, þar sem nemendum var veitt viðurkenning fyrir framúrskarandi árangur í námi á vorönn 2023. Þessir nemendur komast á forsetalista og fá niðurfelld skólagjöld núverandi annar.

Dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, sviðforseti tæknisviðs, flutti ávarp.
Dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, sviðforseti tæknisviðs, flutti ávarp og sömuleiðis Úlfar Freyr Stefánsson PhD, framkvæmdastjóri áhættustýringar Arion banka, sem er aðalbakhjarl forsetalista HR. Guðlaug Matthildur Jakobsdóttir, forstöðukona alþjóðasviðs, stýrði athöfninni og deildarforsetar afhentu nemendunum viðurkenningarskjöl. Baldvin Bjarki Gunnarsson, nemi í fjármálaverkfræði, flutti erindi fyrir hönd nemenda.
CODEX verðlaunin voru afhent af Jóni Alfreð Sigurðssyni, laganema við HR og stjórnarmanni í CODEX.

Baldvin Bjarki Gunnarsson, nemi í fjármálaverkfræði, flutti erindi fyrir hönd nemenda.
Smelltu hérna til að skoða forsetalista vorannar 2023
Fleiri myndir frá athöfninni má sjá hérna á Facebook-síðu HR
Dagsetning
Deila