Frá Sauðárkróki til Seattle að loknu námi í HR
Ester María Eiríksdóttir útskrifaðist með BSc gráðu í byggingartæknifræði frá Tæknifræðideild Háskólans í Reykjavík nú í febrúar. Ester María er fædd og uppalin fyrir norðan, lauk stúdentsprófi frá VMA og húsasmíðanámi um leið.

Ég hafði í raun áhuga á mörgum fögum en mig langaði að læra eitthvað hagnýtt svo ég fór í smíðina og tók stúdentinn með. Að því loknu lá leiðin beint í tæknifræðina þar sem ég vildi halda áfram í hagnýtu námi. Byggingartæknifræðin er mjög krefjandi nám en það er líka skemmtilegt. Nemendahópurinn heldur vel saman, kennslan er persónuleg og kennararnir mjög aðgengilegir nemendum.
Nú í vor hlaut Ester María viðurkenningu Steinsteypufélags Íslands fyrir lokaverkefnið sitt er bar heitið; Skoðun á tengingum milli forsteyptra stöpuleininga. Leiðbeinendur hennar voru þeir Jóhann Albert Harðarson, Ólafur Sveinn Haraldsson og Helgi Sigursteinn Ólafsson.
Lokaverkefnið mitt var rannsóknarverkefni þar sem ég hannaði/reiknaði og smíðaði/steypti tvö mismunandi prufustykki sem ég burðarþolsprófaði síðan á verkstæði deildarinnar í HR. Ég öðlaðist mikilvæga reynslu af tilraunum með verkefninu og vonast síðan til að það muni nýtast til þess að stytta tímann sem það tekur að byggja upp forsteypt mannvirki á verkstað, þá sérstaklega forsteyptar brýr. Verkefnið var styrkt af rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar.
Ester María starfar nú á Stoð Verkfræðistofu á Sauðárkróki en flytur til Seattle í Bandaríkjunum í haust til þess að stunda meistaranám í byggingarverkfræði við The University of Washington en hún hlaut skólastyrk (Valle Scholarship) til að stunda þar nám.
Ég mæli með námi við HR, það er frábært að fá lögverndað starfsheiti strax eftir BSc, og námið undirbjó mig vel fyrir vinnumarkaðinn. Svo opnaði það líka leiðina inn í meistaranám í verkfræði.
Dagsetning
Deila