Frábært tækifæri fyrir nemendur til að tengja sig við Evrópu
Nemendum í fullu námi við HR býðst að sækja um að verða nemendafulltrúar NeurotechEU. Það felur í sér að sitja í Nemendafulltrúaráði NeuortechEU og starfa jafnframt sem sendiherrar NeurotechEU innan skólans.
Þetta er frábært tækifæri fyrir nemendur til að efla tengslanetið þvert yfir Evrópu og öðlast/efla færni sem mun nýtast bæði í námi og starfi. Við hvetjum nemendur til að sækja um og nýta sér þetta tækifæri.
Segir Ragnheiður Kr. Þórhallsdóttir, verkefnastjóri NeurotechEU hjá HR.
Hlutverk nemendafulltrúana er stuðla að og styðja þátttöku nemenda innan NeurotechEU. Þeir taka m.a. þátt í skipulagningu viðburða og eru tengiliðir milli bandalagsins og nemenda við HR. Þeir gegna jafnframt hlutverki sendiherra innan HR sem felur í sér að miðla upplýsingum um tækifæri innan NeurotechEU og hvetja nemendur til þátttöku í viðburðum og verkefnum.
Fulltrúar þurfa að hafa góða samskiptafærni, vera sveigjanlegir og geta gefið sér þann tíma sem þarf í að sinna starfi nemendafulltrúa. Á móti öðlast þeir mikilvæga reynslu í erlendu samstarf og ýmis tækifæri til þátttöku í verkefnum bæði hér heima og erlendis.
Dagsetning
Deila