Framtíðar háskólanemar mátuðu sig við nám í HR
Háskóladagurinn 2026 fór fram í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 28. febrúar síðastliðinn og var vel sóttur. Nemendur, kennarar og starfsfólk tóku á móti gestum og gangandi og kynntu fyrir þeim allt sem viðkemur námi í HR. Þá sá markaðs- og kynningarráð HR, skipað nemendum, um skipulagðar göngur um bygginguna sem voru vinsælar.
Opnar kennslustundir voru einnig í boði í öllum deildum HR þar sem framtíðar háskólanemar gátu mátað sig við nám. Auk þess var í boði fyrirlestur á vegum Nemendaráðgjafar HR um val á háskólanámi.

Katrín Rut Bessadóttir og Rakel Gunnarsdóttir, verkefnastjórar viðburða á Samskiptasviði HR, voru ánægðar með daginn.
Þetta er einn besti dagur ársins hjá okkur í HR enda vitum við fátt skemmtilegra en að taka á móti fólki og kynna fyrir því það frábæra starf sem fram fer í HR. Aðsókn var góð og greinilega mörg sem eru farin að huga að næstu skrefum. Opnu kennslustundirnar vöktu sérstaka lukku og greinilegt að fólki finnst gott að geta mátað sig við ólíkar greinar og áttað sig betur á því hvar áhuginn liggur helst. Nú er næst að halda á Ísafjörð og Akureyri og við hlökkum til að hitta enn fleiri tilvonandi nemendur þar.
Segja þær Katrín Rut Bessadóttir og Rakel Gunnarsdóttir, verkefnastjórar viðburða á Samskiptasviði HR, um daginn.
Háskóladagurinn í Reykjavík 2026 fór fram Háskólanum í Reykjavík, Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands. Skólarnir sem kynntu nám sitt í HR voru Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst og Listaháskóli Íslands.
Hér má finna upplýsingar um allt nám sem er í boði við Háskólann í Reykjavík
Við þökkum kærlega fyrir komuna á Háskóladaginn í Reykjavík 2026!
Dagsetning
Deila