Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
12. mars 2026

Fyrsta doktorsnemastaðan í tæknirétti við lagadeild HR

Í fyrsta sinn er nú auglýst staða doktorsnema í evrópskum tæknirétti við íslenskan háskóla. Staðan er hjá lagadeild HR í tengslum við AI Antenna rannsóknarverkefnið um gervigreind og er einstakt tækifæri til þess að vinna að doktorsrannsókn á sviði lögfræði hér á landi.

Doktorsneminn mun sinna rannsókn sem er hluti af verkefninu og miðar að því að kortleggja og greina áhrif evrópsks regluverks um gervigreind á íslenskan rétt með áherslu á persónuvernd, gagnaöryggi og heilbrigðisrétt.

Rannsóknin snýst um að greina regluverk á sviði gervigreindar og draga út tækifæri sem felast í því fyrir íslenskan rétt, sérstaklega á sviði heilbrigðisvísinda og annara sviða, þar sem þarf að gæta að öryggi varðandi gögn og upplýsingar.


Leiðbeinendur verða Gunnar Þór Pétursson, forseti lagadeildar og María Rún Bjarnadóttir sérfræðingur hjá lagadeild HR sem leiðir aukna áherslu deildarinnar á rannsóknir og kennslu á sviði tækniréttar og stafrænna lagalegra álitaefna.

Þau Gunnar Þór og María Rún benda á að tæknin sé að breyta öllu í samfélaginu, líka lögfræðinni, og nauðsynlegt að bregðast við því og fræða lögfræðinga framtíðarinnar um mikilvægt samspil laga og tækni.

Doktorsnemastaðan er hluti af áherslum lagadeildar HR sem miða að því að gera tæknirétti hátt undir höfði og tengja stafræna þróun við laganám á Íslandi enda augljóst að hér er þróun hafin sem ekki verður stöðvuð.

Segir Gunnar Þór en rannsóknin verður unnin í nánum tengslum við fræðimenn á öðrum fræðasviðum, sérstaklega tölvunarfræði og stafrænni heilbrigðistækni.

Nú þegar eru í boði nokkur námskeið á sviði tæknilögfræði við lagadeild HR sem enn bætist í með tilkomu nýrra námskeiða á borð við samfélagsmiðlalögfræði. Framundan eru rannsóknir og viðburðir eins og þátttaka í gervigreindar ráðstefnunni AI and Society: You, Data, and Sovereign Decision-Making sem haldin verður föstudaginn 13. mars.

Tækniþróunin er að umbylta atvinnulífi og reynir á fræðin. Lagadeildin í HR bregst við þessari þróun með því að auka þverfaglegt samstarf og fjölga tækifærum nemenda til þess að taka þátt í þverfaglegum rannsóknum. Lögfræðingum framtíðarinnar bíða spennandi tækifæri í tækninni og við viljum útbúa nemendur okkar með gott veganesti til þess að nýta þau.

Segir María Rún að lokum.

12. mars 2026
Nýjustu fréttirnar