Fyrsta doktorsvörnin við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík
Katrín Ýr Friðgeirsdóttir varði doktorsverkefni sitt við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík, þann 12. maí síðastliðinn. Var þetta um leið fyrsta doktorsvörnin við deildina. Doktorsritgerð Katrínar ber heitið; The Role of Physical Activity and Exercise in Sleep-Disordered Breathing.
Var markmið verkefnisins tvenns konar. Annars vegar að rannsaka hlutverk daglegrar hreyfingar hjá einstaklingum með kæfisvefn, með því að bera saman hlutlægar og huglægar mælingar á hreyfingu, og meta hvort hreyfing spái fyrir um alvarleika kæfisvefns. Hins vegar að meta áhrif tveggja mismunandi íhlutana, skipulagðrar æfingaáætlunnar og lífsstílsforrits, á mismunandi þætti tengda kæfisvefni og heilsu. Þar á meðal alvarleika kæfisvefns, líkamsmælingar, líkamssamsetningu, líkamlegt hreysti, heilsutengd lífsgæði og svefnheilsu hjá einstaklingum á aldrinum 18-50 ára með vægan til miðlungsháan kæfisvefn.

Setti Katrín saman 12 vikna áætlun út frá fyrirliggjandi æfingaramma sem byggði á fyrri rannsóknum. Alls samþykktu 192 einstaklingar þátttöku í rannsókninni.
Helstu niðurstöður voru þær að þátttakendur með miðlungs til alvarlegan kæfisvefn vanmátu kyrrsetutíma sinn miðað við hlutlægar mælingar, þetta misræmi sást ekki hjá þátttakendum með vægan eða engan kæfisvefn. Hreyfing var ekki marktækur spáþáttur fyrir alvarleika kæfisvefns, aldur, líkamsþyngdarstuðull (BMI) og líkamssamsetning voru hins vegar marktækir spáþættir. Veik eða engin fylgni fannst milli hlutlægra og huglægra mælinga á hreyfingu.
Hjá þátttakendum með vægan til miðlungsháan kæfisvefn leiddi 12 vikna æfingaáætlunin til lækkunar á AHI, auknins vöðvamassa, bætinga á líkamlegu hreysti og fjórum þáttum HRQoL. Að auki urðu bætingar á huglægri svefnheilsu samkvæmt heildarskori spurningalista um svefngæði (PSQI) og þremur undirþáttum hans, án breytinga á hlutlægri svefnheilsu. Lífsstílsforritið leiddi til þyngdartaps, lækkaði BMI, og minnkaði hálsummál, líkamsfitu, innri fitu og vöðvamassa. Einnig urðu bætingar í þremur þáttum HRQoL og huglægri svefnheilsu, sérstaklega í "dagsyfju" undirþætti PSQI. Auk þess urðu breytingar á hlutlægri svefnheilsu, þar sem vökutími eftir svefnbyrjun styttist, aukinn léttur svefn (N2) og styttri djúpsvefn (N3). Einungis N3 svefnstigið sýndi mun milli apphópsins og samanburðarhóps.

Aðal leiðbeinandi Katrínar var dr. Jose M. Saavedra, íþróttafræðideild, meðleiðbeinandi var dr. Erna Sif Arnardóttir, tölvunarfræði- og verkfræðideild. Í doktorsnefnd sátu dr. Anna Sigríður Islind, frá tölvunarfræðideild HR og dr.. Damir Sekulic, Faculty of Kinesiology við Háskólann í Split í Króatíu.
Andmælendur voru dr. Sabrina Forster, Sportwissenschaftlerin, Institut für Sport und Präventivmedizin, Universität des Saarlandes í Saarbrücken, Þýskalandi og dr. Yves Dauvilliers, Sleep and Wake Disorders Centre, Department of Neurology, Gui de Chauliac spítalanum í Montpellier, Frakklandi. Dr. Hafrún Kristjánsdóttir deildarforseti íþróttafræðideildar fór með fundarstjórn.
Dagsetning
Deila