Verðandi útskriftarnemar úr stóriðjuskóla Alcoa Fjarðaáls heimsækja HR
Hópur verðandi útskriftarnemenda úr stóriðjuskóla Alcoa Fjarðaáls kíkti í heimsókn í HR nýverið. Í hópnum voru 20 nemendur sem munu útskrifast úr framhaldsnámi skólans í lok apríl.
Hópurinn fékk kynningu á öllu námi í HR með áherslu á nám við Háskólagrunn og tæknifræðideild. Þá kíkti Hildur Katrín, forstöðukona nemendaráðgjafar á hópinn og ræddi við þau um val á námi. Nemendur fóru svo í skoðunarferð um skólann áður en haldið var heim á leið.
Það var mjög gagnlegt fyrir hópinn að fá kynningu á mögulegum næstu skrefum á menntaveginum, en hjá okkur starfa margir iðnfræðingar, tæknifræðingar og verkfræðingar. Það getur stundum verið áskorun fyrir hátækni iðnfyrirtæki að vera staðsett á Austfjörðum þegar kemur að því að ráða inn fólk með nákvæmlega þá hæfni sem við þörfnumst inn í fyrirtækið. Alcoa Fjarðaál leggur ríka áherslu á að styðja starfsfólk í að vaxa og þróast í starfi, til að mynda með styrkjum til náms. Þannig má segja að hönd í hönd sé fyrirtækið og starfsfólkið að búa til þá sérfræðiþekkingu og hæfni sem rekstur álversins þarfnast. Það er einmitt hluti af ástæðunni fyrir því að Alcoa reisti álver fyrir austan, til þess að styðja við byggðarþróun sem m.a. felst í hærra menntunarstigi í fjórðungnum.
Segir Ingibjörg Gróa Magnúsdóttir, fræðslustjóri Alcoa Fjarðaráls, og bætir við að mörg hver hafi verið að koma í fyrsta skipti inn í háskóla og því gagnlegt að geta mátað sig við þá hugmynd að fara í háskólanám.

Góður grunnur fyrir áframhaldandi nám
Stóriðjuskóli Alcoa Fjarðaáls er samstarfsverkefni Alcoa Fjarðaáls og Austurbrúar og býðst starfsfólki Alcoa Fjarðaál álversins, sem uppfyllir tiltekin skilyrði, að stunda nám við skólann. Námið skiptist í grunnnám og framhaldsnám en frá því að starfsemi skólans hófst haustið 2011 hafa alls 343 nemendur lokið námi, þar af 189 úr grunnnámi og 154 úr framhaldsnámi.
Stóriðjuskóli Fjarðaáls ásamt stóriðjuskólum Norðuráls og Rio Tinto fylgja opinberri námsskrá. Hluti námsins er jafnframt metinn til stúdentsprófs og myndar góðan grunn fyrir áframhaldandi nám.
Við í HR þökkum hópnum fyrir ánægjulega heimsókn og vonumst til að sjá nemendur úr hópnum í HR bráðlega.
Dagsetning
Deila