16. ágúst 2022
Grunnur að upplýstari ákvörðunum
Opni háskólinn í HR-verðbréfaréttindi
„Ég hef stundað nám í nokkrum greinum í Opna Háskólanum í HR, nú síðast í Verðbréfamiðlun, og var ánægð með gæði námsins og faglega kennslu. Námið hefur dýpkað skilning minn á umhverfi verðbréfa og veitt mér góð tæki og tól til að taka betri og upplýstari ákvarðanir í mínu starfi,” segir Mariella Haraldsdóttir.
Marinella útskrifaðist með BSc í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2008 og hóf sama ár störf sem fjármálastjóri hjá Úthafsskip ehf. Árið 2014 tók hún við sem framkvæmdastjóri og sinnir því starfi í dag auk þess að sitja í stjórnum nokkurra félaga.
Verðbréfaréttindi I er nám er undirbýr nemendur fyrir próf í verðbréfaréttindum. Sérfræðingar og stjórnendur sem hafa umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við viðskipti með fjármálagerninga verða lögum samkvæmt að hafa staðist slíkt próf. Prófið nýtist einnig öðrum þeim sem starfa á fjármálamarkaði við að kynna sér grundvallarþætti er varða fjármálamarkaðinn á sviði lögfræði og viðskiptafræði.
Skráning er hafin
Dagsetning
16. ágúst 2022
Deila