Háskólagrunnur // Útskrift úr Háskólagrunni HR vorið 2023
Á þriðja þúsund hafa nú lokið undirbúningsnámi frá deildinni
Hluti útskrifaðra nemenda Háskólagrunns 2023.
Hinn 9. júní útskrifaði Háskólinn í Reykjavík 43 nemendur úr Háskólagrunni við hátíðlega athöfn. Háskólagrunnur býður upp á sértækt undirbúningsnám fyrir háskólanám. Var þetta í 84. sinn sem HR útskrifaði nemendur úr Háskólagrunni og samtals hafa nú 2.474 nemendur lokið prófi frá deildinni.
Útskrifaðir nemendur úr tækni- og verkfræðigrunni voru 11 talsins, 13 nemendur luku prófi úr tölvunarfræðigrunni og 19 úr lögfræði- og viðskiptagrunni. Þá voru 50 skráðir nemendur í viðbótarnám við stúdentspróf við deildina á liðnu skólaári.

Glæsilegur árgangur útskrifaðra nemenda úr Háskólagrunni vorið 2023, ásamt rektor og forstöðumanni Háskólagrunns.
Hæstu einkunn á lokaprófi Háskólagrunns HR hlaut Daníel Arnór Snorrason og fékk hann viðurkenningu frá Samtökum iðnarins, ásamt því að fá viðurkenningar fyrir góðan árangur í raungreinum, ensku og íslensku. Fleiri nemendur fengu viðurkenningar fyrir góðan árangur í einstökum greinum: Daði Jónsson fyrir stærðfræði, Davíð Walter Lenz fyrir viðskiptagreinar og náttúrufræði, Franz Ísak Bergmann Ísaksson fyrir forritun, viðskiptastærðfræði og tölfræði og Sara Leifsdóttir fyrir dönsku.
Deildin sextug á næsta ári
Setning var í höndum Grétu Matthíasdóttur, forstöðukonu náms- og starfsráðgjafar. Jóhann Gunnar Kristinsson flutti ræðu fyrir hönd útskriftarnema og ræðumaður eldri útskrifaðra nemenda var Sigurlaug Þorsteinsdóttir. Þá tók við tónlistaratriði með Steingrími Teague úr Moses Hightower. Að lokum tóku til máls þær Anna Sigríður Bragadóttir, forstöðumaður Háskólagrunns, og Ragnhildur Helgadóttir rektor.
Tónlistarmaðurinn Steingrímur Teague er úr fremstu röð í íslensku tónlistarlífi og á marga smelli með hljómsveitinni Moses Hightower. Hann flutti tónlist á athöfninni í HR.
Þrátt fyrir árin 60 leyfi ég mér að fullyrða að deildin er spræk, satt best að segja við hestaheilsu. Innan hennar er fólk stöðugt á tánum og til í að reyna nýjar leiðir við kennslu og miðlun án þess þó að glata meginmarkmiðinu – sem er að skapa traustan grunn fyrir nemendur til að byggja á til framtíðar og frekara náms,
segir Anna Sigríður.
Háskólagrunnur skapar dýrmæt tækifæri til háskólanáms, til dæmis fyrir þá nemendur sem af einhverjum ástæðum hafa ekki lokið stúdentsprófi.
Jóhann Gunnar Kristinsson flutti ræðu fyrir hönd útskriftarnema.
Við í HR erum stolt af ykkur. Við erum stolt af því að taka þátt í því að byggja fléttuna sem gott menntakerfi verður að vera. Við vonum að þið nýtið menntun ykkar og þau tækifæri sem hún veitir til að blómstra. Að þið gerið það sem ykkur langar til og þið hafið áhuga á. Það, og það að taka hlutunum ekki allt of alvarlega, eru eiginlega bestu heilræði sem ég get gefið. Og eru ekki tvö hæfilegt veganesti í svona ræðu?“
Summary in English
This year, 11 students graduated with an emphasis on further studies in technology and engineering, 13 students with a focus on computer science, and 19 with an emphasis on law and business. Additionally, 50 students were registered for additional studies at the department during the past school year. The Haskolagrunnur Preliminary Studies department will be celebrating its 60th year in the coming year 2024. This was the 84th time students have graduated from the department previously run by the Technical College in Reykjavik.



















Myndir: HR/Sigurjón Ragnar.
Dagsetning
Deila