Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
9. október 2026

Háskólaklíníkin opnar í HR – Nemendaráðgjöf HR flytur í nýtt rými

Háskólaklíníkin hefur opnað í Úranus í Háskólanum í Reykjavík og mun von bráðar opna fyrir þjónustu sína. Nemendaráðgjöf HR hefur þá fært sig um set og hafið starfsemi í nýju og glæsilegu rými í Úranus. Haldinn var formlegur opnunarviðburður 7. október sl.

Með tilkomu Háskólaklíníkur verður aðgengi að fjölbreyttari sálfræðiþjónustu fyrir nemendur og starfsfólk skólans aukið. Meistaranemar í klínískri sálfræði veita sálfræðiþjónustuna undir handleiðslu reyndra sálfræðinga.

Samkvæmt Bettý Ragnarsdóttur, forstöðumanni rannsóknar- og þjálfunarseturs sálfræðideildar HR, mun Háskólaklíníkin jafnframt leggja áherslu á rannsóknir, meðal annars í meðferðarinngripum og fleiru tengdu klínískri sálfræði.

„Við fögnum við því að vera komin með þrjú viðtalsherbergi og hóphandleiðsluherbergi fyrir bæði kennslu og þjálfun nemenda í klínískri sálfræði, og fyrir væntanlega sálfræðimeðferð fyrir nemendur skólans og starfsfólk,“ segir Bettý.

Nýja rýmið kynnt.

Mikilvægur vettvangur fyrir þjálfun sálfræðinga

Dr. Brynja Björk Magnúsdóttir, staðgengill deildarforseta sálfræðideildar, hélt ræðu við opnun Háskólaklíníkurinnar og sagði meðal annars:

„Fyrir okkur í sálfræðideild er þetta mikilvægur áfangi í uppbyggingu námsins og tækifæri til að tengja kennslu og klínískt starf enn betur saman. Hlutverk Háskólaklíníkurinnar er tvíþætt.

Annars vegar að veita aðgengilega og gagnreynda sálfræðiþjónustu og hins vegar að vera vettvangur fyrir þjálfun meistaranema í klínískri sálfræði. Þessi tvö verkefni fara vel saman þegar skýrt er haldið utan um starfið og nemendur fá góða handleiðslu.”

Dr. Brynja Björk Magnúsdóttir hélt ræðu.

Brynja Björk tekur við stöðu deildarforseta af dr. Kamillu Rún Jóhannsdóttir um áramótin. Kamilla Rún tekur þá við sem deildarforseti nýrrar taugavísinda- og heilbrigðistæknideildar.

Eitt samtal getur breytt öllu

Með opnun nemendaráðgjafar HR á nýjum stað verður boðið upp á enn betri aðstöðu þar sem nemendur geta áfram fengið ráðgjöf, stuðning og aðstoð við ýmislegt sem getur komið upp á námsárunum. 

Gréta Matthíasdóttir, sviðsstjóri nemendaþjónustu HR, hélt sömuleiðis ræðu við opnunarviðburðinn af því tilefni að nemendaráðgjöf HR er flutt í nýtt rými.

Gréta Matthíasdóttir hélt ræðu.

„Ég held að ég geti sagt að við HR-ingar höfum alla tíð lagt áherslu á að skapa góðan anda, en fyrst og fremst viljum við öll gera vel og bjóða nemendum okkar upp á það allra besta í kennslu og þjónustu. Og þó að byggingin sé stór, þá hef ég oft heyrt nemendur og aðra tala um að hér sé góður andi – HR andinn.

Nemendaráðgjöf hefur verið á ýmsum stöðum frá því að við fluttum í þetta hús 2010. Markmiðið hefur þó alltaf verið það sama, að veita faglega og framúrskarandi ráðgjöf og stuðning, þannig að nemendur blómstri og nái árangri í námi.

Fagleg aðstaða skiptir mjög miklu máli, þó að innihaldið og starfsemin sé það sem allt hverfist um. Eitt samtal getur breytt öllu. Hvert og eitt okkar skiptir máli og á það viljum við leggja áherslu. Við hvetjum nemendur til að nýta sér þjónustuna.

Með þessu nýja rými erum við því ekki aðeins að opna nýja aðstöðu, þar sem aðgengi, næði og notalegt umhverfi er haft í huga. Við erum að styrkja þjónustu sem snýst um fólk, vellíðan, þátttöku og árangur,” sagði Gréta.

Þarft ekki að finna út úr öllu ein/n

Í tilkynningu frá nemendaráðgjöf HR segir:

Nýtt rými. Nýr staður. Enn betri stuðningur.

Nemendaráðgjöf HR er flutt – á nýjan og betri stað. 💙

Við viljum að þér líði vel í HR og að þú vitir hvert þú getur leitað þegar þú þarft á stuðningi að halda.

Í nemendaráðgjöfinni  getur þú fengið ráðgjöf, stuðning og aðstoð við ýmislegt sem getur komið upp á námsárunum – hvort sem það tengist náminu, líðan, samskiptum eða einfaldlega því að þú ert ekki alveg viss um hvert þú átt að snúa þér. 

Þú þarft ekki að vera með stór vandamál til að leita til okkar – komdu, við erum hér fyrir þig.

Stundum er nóg að segja: „Ég veit ekki alveg hvað ég á að gera.“ Bókaðu tíma hér: https://go.karaconnect.com/p/ru

Komdu við. Spjallaðu við okkur. Spurðu.

Þú þarft ekki að finna út úr öllu ein/n.

Nemendaráðgjöf HR – hér fyrir þig, þegar þú þarft á okkur að halda.

9. október 2026
Nýjustu fréttirnar