Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
8. maí 2026

Háskólinn í Reykjavík hlýtur Grænfánann

Háskólinn í Reykjavík hefur nú náð fyrstu  markmiðum Grænfánaverkefnisins og var Grænfáninn dreginn að húni í fyrsta sinn, miðvikudaginn 6. maí.

Grænfánaverkefnið er nemendamiðað verkefni og nemendur völdu sér neyslu- og hringrásarhagkerfið sem þema fyrir fyrstu Grænfánavegferð HR. Síðastliðið ár hafa þau unnið að verkefnum tengdum hringrásarhagkerfinu og sjálfbærni eins og vel heppnuðum fataskiptamarkaði og góðgerðarviku og plokkdeginum sem fram fór í gær. Þá hefur sjálfbærnidagur HR fest sig í sessi í HR með fyrirlestrum og viðburðum. 

Grænfáninn er viðurkenning á því að nemendur HR hafi sýnt getu til að takast á við málefni sjálfbærrar þróunar, nýta tækifæri til að vera virk í umhverfis- og sjálfbærnimálum, setja sér markmið,  vinna með eigin hugmyndir og  hafa jákvæð áhrif á samfélag sitt.   

Segir Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, aðstoðarrektor náms, nemenda og sjálfbærni við HR. 

Fulltrúar frá Landvernd afhentu Grænfánann og þau Erna María Beck og Orri Þór Eggertsson tóku við honum fyrir hönd Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík (SFHR). Áfanganum var fagnað með nemendum og starfsfólki og þau um leið hvött til að taka þátt í að plokka í nærumhverfi háskólans.  

Grænfánaverkefnið miðar að því að efla menntun í sjálfbærni- og umhverfismálum, styrkja nemendur í að verða virkir þátttakendur í umhverfis- og sjálfbærnimálum, minnka vistspor skólastarfs og auka hnattræna vitund. 

Landvernd stýrir Grænfánaverkefninu hér á landi í samstarfi við alþjóðlegu samtökin FEE (Foundation for Environmental Education). Skólar sem taka þátt fylgja þessu skipulagða ferli þar sem umhverfismál eru fléttuð inn í daglegt starf, meðal annars með virkri umhverfisnefnd, afmörkuðum verkefnum og vinnuhópum. Að lokinni úttekt, þar sem metið er hvernig skólum hefur tekist að ná settum markmiðum, er Grænfánanum flaggað við skólann.  

Hugtakið „sjálfbær þróun" á rætur að rekja til skýrslu Sameinuðu þjóðanna frá 1987, „Our Common Future", sem unnin var undir forystu Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs. Þar er hugtakið skilgreint sem þróun sem þjónar þörfum nútímans án þess að skerða getu framtíðarkynslóða til að mæta sínum þörfum. Skilgreiningin byggir á þremur meginstoðum: Samfélagi, efnahagi og náttúru. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun byggja síðan á þessum þremur meginstoðum. Þau eru margþætt og metnaðarfull, snerta allt daglegt líf okkar á jörðinni og krefjast þátttöku og samstarfs ólíkra hagsmunaaðila, þar á meðal ríkja, sveitarfélaga, stofnana, atvinnulífs, skóla og sjálfboðasamtaka. 

8. maí 2026
Nýjustu fréttirnar