Helgi Þór Ingason prófessor hlýtur A-vottun IPMA á sviði þjálfunar og kennslu
Helgi Þór Ingason prófessor hlýtur A-vottun IPMA á sviði þjálfunar og kennslu
Helgi Þór Ingason, prófessor við Háskólann í Reykjavík og formaður stjórnar Advanced MPM-námsins í verkefnastjórnun við verkfræðideild skólans, hefur hlotið IPMA Level A – Certified Executive Trainer (CET) viðurkenningu. Um er að ræða hæstu alþjóðlegu vottun International Project Management Association á sviði kennslu og þjálfunar í verkefnastjórnun.
Helgi er fyrsti Íslendingurinn til að hljóta þessa viðurkenningu og því um mikinn heiður að ræða. Vottunin staðfestir framúrskarandi hæfni í þróun námsleiða, stjórnendaþjálfun og faglegri hæfnibyggingu á sviði verkefnastjórnunar. Við matið var meðal annars horft til leiðtogahlutverks hans í þróun Advanced MPM-námsins við HR og alþjóðlegs þjálfunarstarfs hans fyrir GRÓ Geothermal Training Programme undir merkjum UNESCO.
IPMA Level A – CET er ætluð einstaklingum sem hafa sýnt fram á víðtæka reynslu í kennslu, ráðgjöf og þróun þjálfunar fyrir sérfræðinga og stjórnendur. Matsferlið felur meðal annars í sér ítarlegt hæfnimat, rannsóknar- og reynsluskýrslur auk viðtala við alþjóðlega úttektaraðila.
Helgi Þór hefur um árabil sinnt þróun og uppbyggingu Advanced MPM-námsins við HR, sem hefur verið leiðandi meistaranám á sviði verkefnastjórnunar á Íslandi frá stofnun þess árið 2005. Advanced MPM-námið við Háskólann í Reykjavík er þverfaglegt meistaranám ætlað einstaklingum sem vilja efla hæfni sína í verkefna-, breytinga- og stjórnunarvinnu. Námið leggur áherslu á hagnýta nálgun, tengsl við atvinnulíf og alþjóðlega staðla í verkefnastjórnun og hefur notið vaxandi vinsælda meðal stjórnenda og sérfræðinga úr ólíkum greinum atvinnulífsins.
Spurður um hvað sé á döfinni nefnir Helgi Þór sjálfbærnidaginn þann 9. september næstkomandi þar sem til stendur að halda málþing um áhættustjórnun í tengslum við loftslagsáhrifin. Til þess að ræða það nánar mun danskur prófessor sem fæst við áhættustjórnun og áhættumat koma til landsins og einnig verður haldin vinnustofa í samvinnu við Verkfræðingafélag Íslands, Landsvirkjun og Landsnet.
Það er því margt um að vera á næstunni. Nýr hópur byrjar í Advanced MPM náminu í haust og enn eru laus nokkur sæti. Helgi Þór vinnur rannsóknum á notkun spunagreindar í kennslu og einnig tekur hann þátt í samstarfi við Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Verkfræðingafélagið um um að bæta opinbera verkefnastjórnsýslu. Framundan er meðal annars IMaR ráðstefnan í haust, alþjóðleg rannsókna ráðstefna á sviði verkfræði, nýsköpunar, fjármála, risaverkefna og áhættu.
Dagsetning
Deila