HR gefur út nýja PRME skýrslu um sjálfbærni
Háskólinn í Reykjavík hefur gefið út PRME skýrslu, þar sem er að finna yfirlit yfir stöðuna í HR þegar kemur að sjálfbærni í námi, kennslu, rannsóknum og eigin rekstri háskólans. HR gefur nú út PRME skýrslu í fjórða sinn en fyrri skýrslur má finna hér.
PRME stendur fyrir United Nations Principles for Responsible Management Education sem felur í sér að HR hefur skuldbundið sig til að fylgja meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrga kennslu í stjórnun (UN PRME). HR hefur verið aðili að samstarfinu frá 2012.
Dr. Stefan Wendt, deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar HR, hafði yfirumsjón með gerð skýrslunnar, en hún leggur grunn að forgangsröðun verkefna HR í tengslum við sjálfbærni og veitir einnig alþjóðlegan samanburð við aðra háskóla.

Mikið og fjölbreytt sjálfbærnistarf
Í HR fer fram mikið og fjölbreytt sjálfbærnistarf, þar á meðal í gegnum störf Sjálfbærninefndar HR og rannsóknarsetrin Sustainability Institute and Forum (SIF) og CloCCS. Þá hefur HR kortlagt bæði rannsóknir og námskeið við skólann eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Aðkoma HR að PRME er sameiginlegt framtak alls háskólans og er samræmt af Sjálfbærninefnd HR. Nýja skýrslan gerir grein fyrir þátttöku skólans í UN PRME árin 2025–2026 og leggur áherslu á meginreglurnar sjö: tilgang, gildi, kennslu, rannsóknir, samstarf, framkvæmd og miðlun.
Nánar um PRME skýrsluna hér.
Vel heppnaður Sjálfbærnidagur
Í síðasta mánuði fór Sjálfbærnidagur HR, í samstarfi við Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík (SFHR), fram og var þátttaka góð.

Boðið var upp á diskósúpu, gerð úr nothæfu hráefni sem á að farga, og fatauppboð Sorpu og Góða hirðisins til styrktar Píeta samtökunum.
Málþing SIF um aðlögun mikilvægra innviða að aukinni áhættu vegna loftslagsbreytinga var vel sótt en erindi á þinginu fluttu Dr. Martin Drews frá DTU og fulltrúar frá bakhjörlum SIF, Landsvirkjun og Landsneti.
Fjallað var um málþingið á Morgunvaktinni á Rás 1 auk þess sem Morgunblaðið tók viðtöl við Drews og Jóhönnu Hlín Auðunsdóttur frá Landsvirkjun.

Dagsetning
Deila