Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
12. febrúar 2025

HR og Hagstofa Íslands í samstarf á sviði rannsókna

Háskólinn í Reykjavík og Hagstofa Íslands hafa undirritað samkomulag um aðgang nemenda í framhaldsnámi að aðstöðu, gögnum og aðstoð sérfræðinga stofnunarinnar við vinnu að lokaverkefnum þeirra.

Markmið samkomulagsins er að auka samstarf Hagstofunnar og HR á sviði rannsókna, og felur það í sér að nemendum í framhaldsnámi í HR eru veitt tækifæri til að vinna lokaverkefni, meistararitgerðir, doktorsritgerðir eða stakar greinar (sem eru hluti af doktosritgerð) í samstarfi við Hagstofuna.

Með samkomulaginu er metnaðarfullum nemendum gert kleift að vinna að mikilvægum aðferðafræðilegum eða rannsóknartengdum verkefnum á íslensku samfélagi og þannig auka við þekkingu sína og færni við meðferð gagna og reynslu sína af rannsóknarvinnu. Á sama tíma gerir samkomulagið Hagstofunni kleift að auka gæði sinna gagna með því að fá til liðs við sig metnaðarfulla nemendur til að sinna afmörkuðum verkefnum.

12. febrúar 2025
Nýjustu fréttirnar