HR og Magnavita rannsaka áhrif náms á heilsu og velsæld fólks á þriðja æviskeiði
Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík og Magnavita hafa undirritað tveggja ára samstarfssamning um rannsókn á áhrifum Magnavita-námsins fyrir þriðja æviskeiðið.
Rannsóknin, sem er yfirgripsmikil, hefur það að markmiði að meta áhrif Magnavita-námsins á heilsu og velsæld fólks á þriðja æviskeiði eða á aldrinum 55 til 75 ára. Rannsóknin verður hluti af meistararitgerð í íþróttavísindum og þjálfun.
Þátttakendum sem skráðir eru í Magnavita-nám næstu tvö árin verður boðin þátttaka í rannsókninni. Auk þess verður hluta nemenda boðin þátttaka í líkamlegri þjálfun á vegum íþróttafræðideildarinnar. Þá verður leitað til almennings til að mynda samanburðarhóp.
Í rannsókninni verða framkvæmdar líkamsmælingar og lagðir fyrir valfrjálsir spurningalistar í upphafi og lok rannsóknartímabilsins. Mælingarnar ná meðal annars til líkamssamsetningar, styrks, liðleika, hreyfifærni og þols. Þá verður einnig horft til svefns, næringar, andlegrar heilsu, félagslegra tengsla, einmanaleika, velsældar og fjárhagslegrar heilsu. Þessir þættir tengjast beint áherslum Magnavita-námsins, þar sem unnið er með líkamlega, andlega, félagslega og fjárhagslega heilsu.
Allir þátttakendur fá eigin heilsuskýrslu með sínum niðurstöðum. Þar verða niðurstöður bornar saman við almenn viðmið eftir aldri og kyni, byggð á viðurkenndum rannsóknum. Heilsuskýrslan veitir þátttakendum skýra mynd af eigin heilsu og gerir þeim kleift að sjá hvar þeir standa.

Magnavita-námið hefur verið í boði frá 2023 í samstarfi við Opna háskólann í HR. Námið er ætlað fólki á aldrinum 55 til 75 ára, stendur yfir í eitt skólaár og er kennt einn dag í viku. Alls hafa 148 nemendur útskrifast úr náminu frá upphafi. Tilgangur námsins er að fjölga spennandi og heilbrigðum æviárum með áherslu á líkamlega, andlega, félagslega og fjárhagslega hreysti.
Guðfinna S. Bjarnadóttir, fyrsti rektor HR og ein af stofnendum námsins, segir að þau sem standi að náminu hafi alla tíð séð að það hafi jákvæð áhrif á nemendur. „Þessi rannsókn gefur okkur tækifæri til að skoða þessi jákvæðu áhrif nánar og staðfesta upplifun nemenda með mælanlegum niðurstöðum. Á mínum 50 ára ferli í skólastarfi og kennslu hef ég aldrei upplifað jafn mikla ánægju og þakklæti meðal nemenda,“ segir Guðfinna.
Niðurstöður rannsóknarinnar munu veita mikilvæga innsýn þegar kemur að áhrifum námsins og munu geta nýst við frekari þróun þess. Þá munu niðurstöðurnar einnig gagnast heilbrigðisyfirvöldum og sveitarfélögum við stefnumótun og skipulagningu heilsueflandi úrræða fyrir ört stækkandi hóp fólks á þriðja æviskeiði.
Dagsetning
Deila