Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
17. janúar 2024

HR og Nýsköpunarvika áfram í öflugu samstarfi

Háskólinn í Reykjavík og Nýsköpunarvika (e. Iceland Innovation Week) hafa endurnýjað samstarfssamning sinn. Iceland Innovation Week er nýsköpunarhátíð sem haldin er ár hvert og fer næst fram dagana 13.-17. maí 2024. HR er bakhjarl hátíðarinnar.

Tilgangur Iceland Innovation Week er að halda utan um og gera allri nýsköpun hátt undir höfði, hvort sem er sprotafyrirtækjum eða stórum fyrirtækjum. Á hátíðinni gefst fyrirtækjum og frumkvöðlum kostur á að standa fyrir margs konar uppákomum og viðburðum. Markmiðið er að auka aðgengi og sýnileika nýsköpunar þvert á atvinnugreinar og fyrirtæki og frumkvöðlar fá tækifæri til að deila mikilvægri þekkingu.

Háskólinn í Reykjavík kemur til með að skipuleggja viðburð á vegum Iceland Innovation Week í maí. Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir, forstöðumaður atvinnulífstengsla og nýsköpunar hjá HR, Karitas Harðardóttir viðburðastjóri og Guðfinna Birta Valgeirsdóttir markaðsstjóri hjá Iceland Innovation Week, hittust og lögðu línurnar fyrir samstarfssamninginn og næstu skref.

///

Reykjavik University and Iceland Innovation Week have renewed their partnership. Iceland Innovation Week is a festival that celebrates and showcases innovation, taking place at the end of May every year. This year the festival will be May 13th-17th. RU is one of its partners.

The purpose of Iceland Innovation Week is to keep track of and promote all innovation, be it at startups or bigger companies. At the festival, companies and entrepreneurs have the opportunity to host a variety of events. The goal is to increase accessibility and visibility of innovation across industries, and give companies and entrepreneurs the opportunity to share important knowledge and experiences.

RU is committed to hosting an event in collaboration with Iceland Innovation Week. Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir, Director of Innovation and Industry relations at RU, and Karitas Harðardóttir, director of events, and Guðfinna Birta Valgeirsdóttir, marketing director, met and went over the key aspects of the partnership.

17. janúar 2024
Nýjustu fréttirnar