HR og RUPA gera með sér samstarfssamning
Háskólinn í Reykjavík og RUPA, félag doktorsnema við HR, hafa gert með sér samstarfssamning um að efla samtal, samráð og stuðning við doktorsnema háskólans. Samningurinn gildir fyrir tímabilið 2026–2029 og var undirritaður af dr. Ólafi Eysteini Sigurjónssyni, aðstoðarrektor vísinda, nýsköpunar og atvinnulífstengsla við HR, og Teddy D’Moi Keen, formanni RUPA.
Með samningnum er lögð áhersla á mikilvægt hlutverk RUPA sem rödd doktorsnema innan háskólans. Félagið vinnur að hagsmunum doktorsnema, eflir tengsl þeirra sín á milli og stuðlar að öflugu akademísku og félagslegu umhverfi. Sérstök áhersla er lögð á að styðja nýja doktorsnema við að aðlagast háskólasamfélaginu og skapa vettvang fyrir samtal um málefni sem varða doktorsnám við HR.
Samningurinn styrkir einnig tengsl RUPA við stjórnendur háskólans og tryggir reglulegt samráð um málefni doktorsnema. Með þessu er ætlunin að stuðla að góðu upplýsingaflæði, aukinni þátttöku doktorsnema í háskólasamfélaginu og áframhaldandi þróun doktorsnáms við Háskólann í Reykjavík.
Samstarfið markar mikilvægt skref í að efla umgjörð doktorsnáms við HR og undirstrikar sameiginlegan vilja háskólans og RUPA til að byggja upp sterkt, virkt og styðjandi samfélag doktorsnema.
Dagsetning
Deila