HR tók þátt í þróun námstölvuleiksins Build as Nature
Háskólinn í Reykjavík er einn af fimm samstarfsaðilum sem standa í sameiningu að námstölvuleiknum Build as Nature. Tölvuleikurinn er hugsaður fyrir mennta- og háskólastig þar sem markmiðið er að kynna nemendur fyrir náttúrumiðuðum lausnum með því að þeir prófi sig áfram í uppbyggingu samfélags eða borgar.
Samstarfsaðilar HR eru háskólarnir Fachhochschule Dortmund í Þýskalandi, Panepistimio Thessalias í Grikklandi og Tallinn University í Eistlandi ásamt þjálfunar-, ráðgjafa- og hugbúnaðarþróunarfyrirtækinu Virtual Campus.
Starfsfólk Panepistimio Thessalias sá að mestu leyti um framleiðslu leiksins á meðan HR og Fachhochschule Dortmund sáu um leikjahönnun og þróun leiksins. Háskólinn í Tallinn sá þá til þess að náttúruvísinda gögnin sem stuðst er við í leiknum séu vísindalega rétt.
Ráðstefnur og kynningar hafa verið hluti af samstarfsverkefninu auk þess sem samstarfsaðilarnir hafa gefið út skýrslur um náttúrumiðaðar lausnir við samfélagslegum áskorunum.
Steingerður hefur unnið við leikinn í tvö ár
Build as Nature er tölvuborðspil sem er uppbyggt með spilastokki og snýst um að gera tilraunir með auðlindahringrásir með notkun sveigjanlegs kerfis. Þannig eru hugmyndir um sjálfbærni kynntar fyrir spilurum í gegnum uppbyggingu leiksins.
Steingerður Lóa Gunnarsdóttir, sérfræðingur við tölvunarfræðideild HR, hefur unnið að hönnun og þróun leiksins undanfarin tvö ár.

„Ég hélt Nature Meets Play ráðstefnuna hér í HR sem hluta af verkefninu og kynnti leikinn þar að auki á viðburði í skólanum sem og í tveimur námskeiðum hjá David Finger [dósent] í verkfræðinni.
Einnig sýndi ég leikinn á viðburðinum Games & Diplomacy sem InnoGS hélt í HÍ sem hluti af Arctic Circle ráðstefnunni. Þá sá ég um að gera kennsluvídeó fyrir leikinn sem má finna á vefsíðunni,“ segir Steingerður Lóa.
Nánar um Build as Nature
Build as Nature miðar að því að veita háskólkennurum og öðrum fræðsluaðilum víðs vegar um Evrópu stafræn verkfæri. Verkfærunum er síðan ætlað að kynna nemendur fyrir meginreglum og virkni náttúrumiðaðra lausna á samfélagslegum áskorunum á lifandi og skemmtilegan hátt.
Í þessu skyni þróuðu samstarfsaðilarnir stafrænan kennslu- og námsleik sem byggir á vísindalegum og kennslufræðilegum grunni. Leikurinn sýnir fram á flókið samspil mannlegra athafna og áhrifa þeirra á vistkerfi.
Build as Nature er aðgengilegur öllum og hann má finna á heimasíðu tölvuleiksins.
Dagsetning
Deila