Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
22. apríl 2026

HSÍ og íþróttafræðideild HR auglýsa kostaða meistaranámsstöðu í íþróttavísindum

Laus er til umsóknar námsstaða í meistaranámi í íþróttavísindum og þjálfun (MSc) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík.

Staðan er kostuð af Háskólanum í Reykjavík og Handknattleikssambandi Íslands (HSÍ) og mun nemandinn ekki greiða skólagjöld meðan á námstíma stendur.

Umsóknarfrestur er til 15. maí næstkomandi og mun nemandi hefja nám strax á haustönn, samkvæmt skóladagatali.

Skuldbindingar nemanda eru eftirfarandi:

  • Nemandi skuldbindur sig til að gera meistaraverkefni sem tengist líkamlegri getu leikmanna landsliða Íslands í handbolta. Nemandi skrifar lokaritgerð í nánu samstarfi við leiðbeinanda (akademískan starfsmann HR) og HSÍ. Nemandi skuldbindur sig jafnframt til þess að kynna niðurstöður meistaraverkefnisins samkvæmt óskum HSÍ.
  • Nemandi skuldbindur sig til þess að sjá um mælingar á landsliðum Íslands í handbolta undir handleiðslu þjálfarateymis landsliðanna og kennara íþróttafræðideildar HR á meðan námstíma stendur.
  • HSÍ og þjálfarateymi þeirra geta óskað eftir því að nemandi sjái um ráðgjöf er varðar líkamlega þjálfun fyrir leikmenn landsliða Íslands. Slík ráðgjöf yrði alltaf í nánu samstarfi við þjálfarateymi og undir handleiðslu kennara íþróttafræðideildar HR.
  • Nemandi leitast eftir því að vinna eins mörg verkefni á námstíma og mögulegt er í tengslum við handbolta landsliðin og veita þjálfarateymi aðgang að verkefnum sínum.
  • Nemandi skuldbindur sig til þess að ljúka 10 ECTS eininga (250 vinnustundum) verknámi hjá HSÍ á tímabilinu. Verknámið er námskeið og því ólaunað og munu verkefnin verða ákveðin í samráði við nemandann og taka mið af sérhæfingu nemandans.
  • Nemandi skuldbindur sig til að halda áætlaðri námsframvindu og mæta samviskusamlega í kennslustundir, ásamt því að taka þátt í kynningarstarfi á vegum HR. Dæmi um slíkt væri viðvera á Vísindavöku, Háskóladeginum, meistaranámskynningum og UTmessu.

Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast með tölvupósti til Hjalta Rúnars Oddssonar, hjaltio@ru.is, og Sveins Þorgeirssonar, sveinntho@ru.is.

22. apríl 2026
Nýjustu fréttirnar