Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
29. apríl 2026

Hugmynd að vefjastoðefni úr brúnþara hlaut Vísinda- og nýsköpunarverðlaun HÍ

Verkefnið „Vefjastoðefni úr brúnþara“ hlaut Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands 2026 og var jafnframt valið sigurvegari keppninnar í heild. Verkefnið snýst um að þróa sjálfbært vefjastoðefni úr brúnþara í stað dýravefja, sem gæti nýst við meðhöndlun krónískra sára, bruna, áverka og annarra vefjaskemmda.

Að verkefninu stendur Svava Kristinsdóttir, doktorsnemi í lífverkfræði við HÍ, í samstarfi við Sigrúnu Nönnu Karlsdóttur og Sigurð Brynjólfsson prófessora við verkfræðideild Háskóla Íslands, Óttar Rolfsson professor við Læknadeild Háskóla Íslands og Ólaf Eystein Sigurjónsson, prófessor og sviðsforseta Tæknisviðs við Háskólann í Reykjavík. Ólafur Eysteinn er einn af leiðbeinendum Svövu og sérfræðingur í vefjaverkfræði.

Verðlaunahafar á Vísinda- og nýsköpunarverðlaunum HÍ ásamt rektor, formanni dómnefndar og verkefnisstjóra nýsköpunar. MYND/Kristinn Ingvarsson

Dómnefnd taldi verkefnið byggja á sterkum vísindalegum grunni og hafa bæði skýrt nýnæmi og mikið hagnýtingargildi. Nýnæmið felst annars vegar í notkun brúnþara sem sjálfbærs hráefnis í stað dýraafurða og hins vegar í nýrri affrumunaraðferð sem varðveitir eiginleika hráefnisins betur en hefðbundnar aðferðir.

Verkefnið hefur möguleika á að stuðla að frekari rannsóknum, verðmætasköpun og nýsköpun á sviði líftækni og heilbrigðistækni.

29. apríl 2026
Nýjustu fréttirnar