Hugsandi skólastofa – ný nálgun til að auka virkni nemenda
Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík hefur tekið upp nýja kennsluaðferð, Hugsandi skólastofu, í þremur námskeiðum á fyrsta ári; Forritun með MATLAB, Stærðfræði I og Línulegri algebru.
Hugsandi skólastofa (Building Thinking Classrooms) byggir á rannsóknum Peter Liljedahl, prófessors í stærðfræðimenntun við Simon-Fraser háskólann í Kanada. Aðferðin hefur það að markmiði að virkja nemendur betur í tímum og skapa meira rými fyrir samvinnu, umræðu og sjálfstæða hugsun.
Við tölvunarfræðideild hefur nálgun Hugsandi skólastofu sömuleiðis verið innleidd í nýtt námskeið fyrir fyrsta árs nemendur; Hugsun og færni í tölvunarfræði (HOFI). Námskeiðið er hannað með það í huga að undirbúa nemendur fyrir aukna notkun gervigreindar.

Með fjölbreyttum verkefnatímum sem leggja áherslu á hugsun, færniþjálfun og lausn krefjandi viðfangsefna þróa nemendur hæfni sína til að skilgreina vandamál, skerpa dómgreind, vinna með öðrum, nýta gervigreind á ábyrgan hátt og miðla hugmyndum sínum. Um leið fá þeir góða yfirsýn yfir tölvunarfræði í námsumhverfi sem byggir á virkri þátttöku og samvinnu.
Einnig hefur verið stuðst við þessa aðferð við kennslu á stærðfræði í Háskólagrunni HR.
Einn af stærstu kostunum við námið
Birgitta Rún Yngvadóttir, nemandi í rekstrarverkfræði, er ánægð með kennsluaðferðina.
„Mér finnst þetta mjög skemmtilegt fyrirkomulag og finnst ég fá mikið út úr þessum tímum. Það hjálpar mér mikið að ræða dæmin við aðra og heyra hvernig aðrir hugsa. Mér finnst maður oft ná betri skilningi á efninu þegar maður getur rætt sig í gegnum dæmin saman.
Mér finnst líka mikill kostur hvað þetta hristir hópinn saman. Maður vinnur með alls konar fólki, kynnist samnemendum betur og það er yfirleitt mjög góð stemning í tímunum.
Það getur samt verið smá galli ef maður lendir með einhverjum sem skilur dæmin betur. Þá getur maður fengið lausnina of fljótt, án þess að hafa náð að reyna almennilega sjálfur, og þá lærir maður kannski minna af dæmunum.
En heilt yfir finnst mér þetta mjög góð leið til að læra. Mér finnst stærsti kosturinn klárlega vera að ræða dæmin, læra af öðrum og ná þannig betri skilningi á efninu,“ segir Birgitta Rún.

Snorri Sveinn Lund, nemandi í fjármálaverkfræði, er ekki síður ánægður.
„Mér finnst frábært að vinna í Hugsandi skólastofu. Áður en ég byrjaði í háskóla sá ég háskólanám fyrir mér sem stóran skóla þar sem maður situr í fyrirlestrum, hlustar á kennarann og vinnur síðan verkefnin sín sjálfur. Þess vegna hefur komið mér skemmtilega á óvart hversu mikilvægir dæmatímarnir eru, ekki bara fyrir námið heldur líka félagslega.
Þegar kemur að náminu finnst mér dæmatímarnir gefa manni tækifæri til að komast betur inn í efnið og fá dýpri skilning á því. Þar vinnur maður verkefnin með öðrum nemendum og hefur bæði kennara og eldri nemendur til að leita til ef maður festist eða þarf aðstoð. Mér finnst sérstaklega gagnlegt að vinna dæmin uppi á töflu, þar sem maður þarf að hugsa sig í gegnum þau og ræða lausnirnar með öðrum í stað þess að reyna að leysa allt einn.
Ég myndi hvetja alla nýnema til að mæta í dæmatímana og taka virkan þátt í Hugsandi skólastofu. Þetta fyrirkomulag hefur hjálpað mér mikið, bæði námslega og félagslega, og er að mínu mati einn af stærstu kostunum við námið hingað til,“ segir Snorri Sveinn.

Dagsetning
Deila