Hvað er á döfinni hjá SFHR?
Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík (SFHR) er hagsmunafélag nemenda við skólann. Rúnar Gauti Gunnarsson er forseti SFHR á skólaárinu 2026/2027 og segir margt skemmtilegt á döfinni á haustönn.
„Skólaárið hefst af krafti með nýnemadögum 13. og 14. ágúst. SFHR og nemendafélög skólans kynna þar starfsemi sína og taka vel á móti nýjum nemum,“ segir Rúnar Gauti.
Allir nemendur skólans, þar með taldir nýnemar, eru sjálfkrafa meðlimir SFHR og þurfa ekki að borga félagsgjöld.
„Nýnemadjömm nemendafélaganna fara flest fram 21. ágúst og hafa alltaf tekist vel til. SFHR heldur svo nýnemadjamm þann 28. ágúst þar sem við hvetjum alla til þess að mæta en það er ein besta leiðin til þess að kynnast nýju fólki sem verður með manni næstu árin,“ segir hann.

Ólympíuvikan stærsti viðburður annarinnar
Góðgerðarvika SFHR fer fram dagana 7. - 11. september, þar sem nemendum er frjálst að framkvæma hvers kyns áskoranir og safna um leið fyrir góð málefni.
Stærsti viðburður haustannarinnar, Ólympíuvikan, fer svo fram 21. - 25. september. Ólympíuvikan er íþróttakeppni HR þar sem keppt er í alls kyns íþróttum bæði innan skólans sem utan.
„Alltaf myndast mikil stemning í skólanum og rígur milli nemendafélaganna sem keppast um Ólympíubikarinn! Vikunni er svo slúttað með Ólympíudjammi í Kolaportinu föstudaginn 25. september þar sem lokakeppnir fara fram ásamt mikilli tónlistarveislu,“ segir Rúnar Gauti.
Árshátíðirnar ómissandi
Hann bætir því við að nemendur skuli ekki láta árshátíðir nemendafélaga deilda HR framhjá sér fara.
„Árshátíðir nemendafélaganna fara fram í október og eru af mörgum taldar ómissandi liður á árinu. Hvet ég alla nemendur til þess að mæta á árshátíð síns félags.
Að lokum hvet ég alla nýnema til þess að fylgja SFHR á samfélagsmiðlum, þá helst @studentafelagidsfhr á Instagram,“ segir Rúnar Gauti Gunnarsson forseti SFHR.
SFHR var stofnað til að mynda einingu milli nemenda og að starfa í þágu nemenda bæði innan og utan skólans. Ef einhverjar spurningar vakna geta nemendur sent tölvupóst á studentafelag@ru.is, heimsótt félagið á skrifstofu SFHR á 2. hæð í mars, M205, eða haft samband á Facebook síðu SFHR.
Dagsetning
Deila