Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
30. maí 2023

Íþróttafræði // Úr húsasmíði á HM í handbolta

Þórir Hergeirsson er þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta

DSC01578

Fjöldi gesta mætti á hátíðarfyrirlestur Þóris Hergeirssonar þjálfara norska kvennalandsliðsins í handbolta föstudaginn 26. maí. Íþróttafræðideild HR stóð að fyrirlestrinum og var tilefnið 25 ára afmæli HR.

Þar rakti Þórir ferilinn og greindi frá því með lifandi hætti, hvernig leið hans lá inn í heim íþróttanna. Áður en Þórir menntaði sig í íþróttakennslu lærði hann húsasmíði.

„Ég stóð á krossgötum, með sveinspróf í húsasmíði vorið 1986,“ segir Þórir, sem ætlaði í nám og síðan heim til Íslands. „Nú er 2023 og ég er ekki enn kominn heim,“ segir hann glettinn. 

Heim er til Noregs, en alvöru heim er til Íslands. Ég er stoltur af því að vera Íslendingur.

Þórir er ekki síður stoltur Selfyssingur, en þar er hann upp alinn. „Allt þetta ferðalag hefur mótað mann, allt frá því að maður byrjaði á Selfossi í sveitinni,“ segir hann.

Hópíþróttir aldrei mikilvægari

Að sögn handboltaþjálfarans hafa hópíþróttir aldrei átt jafn ríkt erindi við samfélagið. „Egóisminn vex og íþróttir verða æ mikilvægari í samfélaginu,“ segir hann. Þannig telur Þórir íþróttaiðkun mynda nauðsynlegt mótvægi við sívaxandi einstaklingshyggju. Hann vísar í frasa sem hann notar í þjálfun norska kvennalandsliðsins, sem snýr einmitt að þessu, og snarast úr norsku svohljóðandi: „Enginn verðskuldar að vera í betra liði, en hann er tilbúinn að taka þátt í að skapa sjálfur.“

Það er ekki djúpt á húsasmiðnum í Þóri, þó að hann smíði leiksigra fremur en húsnæði í dag. Hann nýtir þekkinguna úr smiðsnáminu og vísar óhikað í líkindin. 

Að byggja lið og byggja hús er alveg það sama, bara mismunandi einingar en alveg sömu prinsipp. Í staðinn fyrir steypu og timbur ertu með persónuleika. Þú ert með fólk.

Þórir grípur í aðra þverfaglega vísun, frá frumkvöðli úr tækniheiminum. „Velgengnin er lélegur kennari, sagði Steve Jobs. Hún lætur fólk halda að það geti ekki tapað.“

Listin að leika með prímadonnum

Í þessum anda segir Þórir norska kvennalandsliðið leika út frá ákveðnum grunngildum. „Landsliðsmenn eiga að vera sendiherrar fyrir þessi gildi og á hverju ári reynum við að vinna í þessu,“ segir hann.

Þá kemur hann inn á nokkru atriði sem hann kallar þjálfunar-fílósófíu: Jákvæða sýn, heildræna nálgun, þátttöku allra sem koma að liðinu og öfluga teymisvinnu.

DSC01559

Þórir ítrekar mikilvægi þess að vinna með styrkleika hvers og eins. Þar nefnir hann gæðaleikmenn sem hann kallar prímadonnur, í jákvæðum skilningi orðsins. „Það mega ekki vera of margar í liði. Þær eru oft langbestar en það þarf að þjálfa restina af hópnum og lyfta þeim tolerans,“ útskýrir hann. „Til að fá styrkinn frá prímadonnunni þarf að þola gallana hennar líka.“ Þórir segir að þannig fari orkan helst í að þjálfa liðið í þoli gagnvart þessum afgerandi leikmönnum.

Þórir svarar spurningu úr sal varðandi það hvort að hann ræði það opinskátt við leikmenn liðsins, hverjir séu prímadonnur og hverjir séu það ekki.

„Við blásum ekki út til annarra viðtölin okkar við einstaklinga og leikmenn. En fyrirliðateymið okkar er mikilvægur stjórnendahópur,“ segir hann. „Þær vinna þetta svolítið og það eru oft þær sem við fáum til að hjálpa okkur með þessi keis.“

Er prímadonna í þeim hópi?

„Ein af þeim er þar já,“ svarar Þórir og hlátur fer um salinn. „Vegna þess að þær sem voru þar fyrir voru duglegar, allt á 100 prósent. En þær áttu erfitt með að segja það sem þær hugsuðu.“

Þórir segir að sálfræðingur liðsins hafi undrast þá ákvörðun Þóris að setja leikmann af þessari prímadonnu-tegund inn í fyrirliðateymið. „Sálfræðingurinn spurði mig: Þórir, hvað ertu að gera? Þú ert að henda sprengju inn í þetta,“ rifjar Þórir upp og hlær. „En ég hafði trú á þessu,“ bætir hann við.

Hann segir að um leið hafi prímadonnan svokallaða, farið að ögra því kerfi sem fyrir var. „En þegar þú kemur inn í þessa rullu þarftu að haga þér að því perspektívi sem liðið hefur.“

Þannig segir Þórir, þurfti gæðaleikmaðurinn að hugsa dæmið upp á nýtt, ekki út frá eigin þörfum heldur út frá þörfum liðsins.

30. maí 2023
Nýjustu fréttirnar