Íþróttafræðideild HR í áframhaldandi samstarfi við KKÍ og KSÍ
Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík hefur í sumar staðið í ströngu við að undirrita samninga við hin ýmsu íþróttasambönd og fyrirtæki hér á landi, þeirra á meðal Körfuknattleikssamband Íslands og Knattspyrnusamband Íslands.
Samstarf við KKÍ
Íþróttafræðideild HR og KKÍ undirrituðu samning um áframhaldandi samstarf í lok júní sl. en þau hafa átt í samstarfi frá 2017.
Samningurinn felur í sér að KKÍ greiðir skólagjöld meistaranema í íþróttafræði í HR til tveggja ára. Nemendurnir sjá um mælingar á yngri landsliðum Íslands með aðstoð nemenda í grunnnámi undir handleiðslu starfsfólks íþróttafræðideildar. Þá munu nemendurnir einnig stunda verknám hjá KKÍ, sem mun m.a. snúa að því að útbúa og miðla fræðsluefni um íþróttasálfræði fyrir körfuboltahreyfinguna.
Ásthildur Olsen var valin úr hópi umsækjenda, en hún lauk BA prófi í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri síðasta vor. Hún mun hefja nám í íþróttavísindum með áherslu á íþróttasálfræði í HR nú í ágúst. Ásthildur hefur víðtæka reynslu af körfubolta bæði sem leikmaður og þjálfari.

Samið við KSÍ til næstu tveggja skólaára
Þá skrifaði íþróttafræðideild HR undir samning við KSÍ um áframhaldandi samstarf um mælingar á yngri landsliðum karla og kvenna. HR og KSÍ hafa átt í slíku samstarfi frá haustinu 2016, sem hefur skapað nemendum margvísleg tækifæri til þátttöku í verkefnum tengdum íslenskri knattspyrnu.
Í samningnum skuldbindur KSÍ sig til að greiða helming grunnnámsgjalda tveggja meistaranema til tveggja skólaára. Íþróttafræðideild skuldbindur sig um leið til þess að bjóða nemendunum tveimur meistaranám á kjörum grunnnáms. Líkt og hjá KKÍ munu nemarnir vera í verknámi hjá knattspyrnusambandinu og vinna að fræðsluefni fyrir knattspyrnuhreyfinguna samhliða því að taka þátt í verkefnum tengdum yngri landsliðum Íslands.

Nemendurnir tveir eru þau Birgitta Hallgrímsdóttir og Gunnar Einarsson, en þau hafa víðtæka reynslu af fjölbreyttum verkefnum tengdum knattspyrnu. Þá hafa þau bæði lokið BS prófi í íþróttafræði, Birgitta frá HR og Gunnar frá HÍ.
Nýtt samstarf við Total Tempo
Um leið var undirritaður samstarfssamningur við Total Tempo, íslenskt tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í tæknivæðingu knattspyrnuþjálfunar með notkun á snjallkeilum og böttum, sem felur í sér að sparka í bolta og fá hann aftur.

Um er að ræða nýtt samstarf sem felur í sér að Total Tempo greiðir skólagjöld fyrir tvo nemendur, þá Kristófer Heimisson og Tristan Ezekiel Baldursson íþróttafræðinga frá HR, og munu þeir vinna að rannsóknarverkefnum fyrir Total Tempo ásamt því að ljúka verknámi þar.
Viðfangsefni rannsóknarverkefnanna er enn í mótun, en mun tengjast því hvernig notkun á búnaði Total Tempo hefur áhrif á tæknilega getu leikmanna, ákvarðanatöku og æfingaákefð.
Dagsetning
Deila