Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
22. september 2026

Íþróttafræðideild HR og HSÍ fagna tíu ára samstarfi með samningi

Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík og  Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, hafa skrifað undir samning um samstarf til næstu tveggja ára.  Samkvæmt samningnum munu nemandi og HR gera yfirgripsmikla rannsókn sem tengist kvennalandsliðum Íslands í handknattleik. Nemandinn mun sjá um líkamlegar mælingar á leikmönnum.

Samstarf HR og HSÍ nær aftur til haustsins 2016 og því áratugur liðinn frá því það hófst. Samstarfið hefur alla tíð falið í sér nákvæmar mælingar nemenda á yngri landsliðum karla og kvenna.

Perla Ruth Albertsdóttir í mælingu á hámarkssúrefnissupptöku. Arnar Pétursson landsliðsþjálfari fylgist með.

Hefur skilað verulegum ávinningi

„Samstarfið hefur sýnt kraftinn sem felst í samstilltu framtaki HR og HSÍ. Gögnin og lærdómurinn frá hverju ári ýtir undir betri þjálfun og nýjungar í íslenskum handbolta. Við hjá HR erum sannfærð um að með þessu samstarfi séum við að leggja traustan grunn undir framtíðarárangur íslensks handbolta,“ segir dr. Sveinn Þorgeirsson, lektor við íþróttafræðideild HR.

Styrkur nára og nærliggjandi vöðva mældur hjá Theu Imani Sturludóttur.

Sömuleiðis ríkir mikil ánægja með samstarfið innan HSÍ.

„Samstarf HSÍ og HR hefur haft gríðarlega mikið vægi fyrir uppbyggingu og faglegt starf í kringum landsliðsstarfið undanfarin tíu ár. Reglulegar mælingar á landsliðsfólki, og þá sérstaklega yngra landsliðsfólki, hafa veitt okkur mikilvægar og gagnlegar upplýsingar um líkamlegt ástand, framfarir og þróun leikmanna yfir tíma. 

Auk mælinganna hefur samstarfið við HR verið okkur mikilvægt í tengslum við fjölmörg önnur verkefni. Við hjá HSÍ metum þetta langvarandi samstarf afar mikils og teljum það hafa skilað verulegum ávinningi fyrir landsliðsstarfið og þá sérstaklega uppbyggingu yngra landsliðsfólks,“ segir Jón Gunnlaugur Viggósson, íþróttastjóri HSÍ.

Gripstyrkur Katrínar Önnu Ásmundsdóttur mældur.

Stefán Óli hlýtur námsstyrk

Í samningnum er kveðið á um að HSÍ skuldbindi sig til þess að veita meistaranema í íþróttavísindum við HR, Stefáni Óla Hallgrímssyni, námsstyrk fyrir grunnnámsgjöldum til tveggja skólaára, frá haustönn 2026 til og með vorönn 2028.

HSÍ skuldbindur sig til að taka við Stefáni Óla í ólaunað starfsnám á tímabilinu og úthluta honum viðeigandi verkefni innan sambandsins undir handleiðslu starfsmanns HSÍ. Starfsnám hans hjá HSÍ skal svara til 10 ECTS eininga.

Íþróttafræðideild HR skuldbindur sig um leið til þess að bjóða Stefáni Óla meistaranám á kjörum grunnnáms.

22. september 2026
Nýjustu fréttirnar