Námið
Rannsóknir
HR

4. desember 2025

Íþróttafræðideild HR og Knattspyrnudeild FH auglýsa kostaða meistaranámsstöðu

Laus er til umsóknar námsstaða í meistaranámi í íþróttavísindum með áherslu á þjálfun (MSc) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Staðan eru kostuð af Háskólanum í Reykjavík (HR) og Knattspyrnudeild FH og mun nemandi ekki greiða skólagjöld meðan á námstíma stendur.

Umsóknarfrestur er til og með 20. desember og mun nemandi hefja nám strax á vorönn, samkvæmt skóladagatali.

Skuldbindingar nemanda eru eftirfarandi:

  • Nemandi skuldbindur sig til að gera meistaraverkefni sem tengist styrktarþjálfun og álagsstýringu hjá FH. Nemandi mun skrifa lokaritgerð í nánu samstarfi við þjálfarateymi FH og leiðbeinanda frá HR, og skuldbindur sig jafnframt til þess að kynna niðurstöður meistaraverkefnisins samkvæmt óskum FH.
  • Nemandi skuldbindur sig til þess að sjá um mælingar á iðkendum FH undir handleiðslu þjálfarateymis FH og kennara íþróttafræðisviðs HR á meðan námstíma stendur.
  • FH getur óskað eftir því að nemandi sjái um ráðgjöf er varðar líkamlega þjálfun. Slík ráðgjöf yrði alltaf í nánu samstarfi við þjálfarateymi og undir handleiðslu kennara íþróttafræðideildar HR.
  • Nemandi leitast eftir því að vinna eins mörg verkefni á námstíma og mögulegt er í tengslum við knattspyrnu og veita FH aðgang að verkefnum sínum. Dæmi um slíkt væri að útbúa ráðleggingar um endurheimt og næringu leikmanna FH í námskeiðinu „Recovery and Nutrition“.
  • Nemandi skuldbindur sig til að ljúka 10 ECTS eininga verknámi hjá FH sem hluta af námi sínu. Verknámið felst í styrktarþjálfun yngri flokka, undir handleiðslu Ben Mackenzie yfirstyrktarþjálfara FH.
  • Nemandi skuldbindur sig til að halda eðlilegri námsframvindu og mæta samviskusamlega í kennslustundir ásamt því að taka þátt í kynningarstarfi á vegum HR sé þess óskað. Dæmi um slíkt væri viðvera á Háskóladeginum.

Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast á tölvupósti til Hjalta Rúnars, hjaltio@ru.is.

Nýjustu fréttirnar
Sjá allar fréttir