Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
18. september 2026

Íþróttafræðideild HR og UMSK í samstarf

Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík hefur skrifað undir samning við Ungmennasamband Kjalarnesþings, UMSK, um samstarf til næstu tveggja ára.

Samstarfið, sem er nýtt af nálinni, gengur út á að nemandi í íþróttafræðideild  geri yfirgripsmikla rannsókn á starfsumhverfi íþróttafélaga UMSK.

Markmið rannsóknarinnar væri að afla gagna og greina hverjir áhrifaþættirnir eru sem helst geta sagt til um starfsánægju, árangur og framþróun í starfi og starfsaldri innan viðkomandi íþróttafélaga á Íslandi.

„Með samstarfi við Háskólann í Reykjavík stefnir UMSK að því að efla tengsl sín við fræðasamfélagið, miðla betur þeirri þekkingu sem þegar er til staðar meðal samstarfsaðila og stuðla að rannsóknum sem nýtast munu í starfi aðildarfélaga okkar á komandi árum,“ segir Victor Ingi Olsen, rekstrarstjóri UMSK.

Karítas Guðrún hlýtur námsstyrk og fer í starfsnám

Samkvæmt samningnum skuldbindur UMSK sig til þess að veita meistaranema í íþróttavísindum og þjálfun við HR, Karítas Guðrúnu Pálsdóttur, námsstyrk fyrir grunnnámsgjöldum til tveggja skólaára, frá haustönn 2026 til og með vorönn 2028.

Peter O'Donoghue prófessor við íþróttafræðideild HR, Karítas Guðrún Pálsdóttir og Victor Ingi Olsen.

UMSK skuldbindur sig til að taka við Karítas Guðrúnu í ólaunað starfsnám á tímabilinu og úthluta henni viðeigandi verkefni innan sambandsins undir handleiðslu starfsmanns UMSK. Starfsnám hennar skal samkvæmt samkomulagi HR og UMSK jafngilda því sem nemur 10 ECTS einingum.

Íþróttafræðideild HR skuldbindur sig sömuleiðis til þess að bjóða Karítas Guðrúnu meistaranám á kjörum grunnnáms.

Aukið samstarf við ÍSÍ

HR og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, ÍSÍ, undirrituðu á dögunum samstarfssamning um aukið samstarf sem er ætlað að styrkja stöðu afreksíþróttafólks í námi.

Afrekshópur HR hefur verið starfræktur um árabil og hefur reynst mikilvægt úrræði fyrir afreksíþróttafólk sem vill samræma háskólanám og íþróttaiðkun á afreksstigi.

Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ og Ragnhildur Helgadóttir rektor HR handsala samkomulagið.
18. september 2026
Nýjustu fréttirnar