Íþróttafræðideildin heldur til Vesturbyggðar
Dr. Sveinn Þorgeirsson, lektor við íþróttafræðideild HR, og Kristján Halldórsson, kennari við íþróttafræðideild HR, héldu í síðustu viku til Vesturbyggðar með það fyrir augum að kynnast fólki á svæðinu, skilja þarfir þess og kanna hvernig hægt væri að styðja við uppbyggingu íþróttakennslu og íþróttastarfs í Vesturbyggð.
Sveinn og Kristján heimsóttu grunnskólana á Bíldudal, Tálknafirði og Patreksfirði og skoðuðu aðstæður til skólaíþrótta, sundkennslu og íþrótta- og tómstundastarfs.

Sveinn og Kristján segja margt til fyrirmyndar þegar kemur að kennslunni en ýmsar áskoranir steðji þó að Vesturbyggð þegar kemur að íþrótta- og tómstundastarfi. Vöntun hefur verið á kennurum til að sinna skólaíþróttum og sundkennslu á svæðinu. Þeir vilji því leggja sérstaka áherslu á að aðstoða við að finna hæft starfsfólk:
„Við horfum einnig til þess hvernig hægt sé að efla skipulagt íþrótta- og tómstundastarf barna og ungmenna utan skólatíma.Eitt af meginmarkmiðunum er að nýta þekkingu, reynslu og tengslanet okkar til að finna fólk sem hentar verkefninu, bæði til skemmri og lengri tíma,“ segir Sveinn.

Háskólar láti sig samfélagið varða
Sveinn og Kristján segjast þá hafa ákveðið að skoða möguleika á samstarfi um rannsóknir sem tengjast þörfum og áskorunum svæðisins og geta nýst sveitarfélaginu til framtíðar. Sveinn minnist í þessu samhengi á mikilvægi samfélagslegs hlutverks háskólanna.
„Mikilvægt er að heimsóknin sé dæmi um hvernig háskólar láta sig samfélagið varða. Háskólar eiga ekki aðeins að sinna kennslu og rannsóknum heldur einnig að nýta þekkingu sína og tengslanet til að mæta raunverulegum þörfum samfélagsins.
Markmiðið til langtíma er að byggja upp tengsl og samstarf sem skilar ávinningi til lengri tíma og stuðlar að betri tækifærum barna og ungmenna til náms, hreyfingar og íþróttaiðkunar, óháð búsetu,“ segir Sveinn.

Dagsetning
Deila