Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
2. júní 2026

Íþróttakennarar þriggja grunnskóla fá viðurkenningu íþróttafræðideildar HR

Íþróttakennarar úr Engjaskóla, Sjálandsskóla og Rimaskóla hlutu viðurkenningu íþróttafræðideildar HR fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Viðurkenningin fór fram í Háskólanum í Reykjavík 28. maí sl. í annað sinn og mun verða endurtekið að ári. 

Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík bauð íþróttakennurum í grunnskóla til þátttöku í framtakinu sem miðar að því að varpa ljósi á áhrifaríkar og hvetjandi aðferðir við kennslu í skólaíþróttum og sundi. Þá er einnig markmið að draga fram góða og vandaða starfshætti í faginu og miðla þeim áfram innan stéttarinnar.  

Þetta var í annað sinn sem íþróttafræðideild HR veitir viðurkenninguna. Í ár var sérstök áhersla lögð á námsmat yngsta stigs, sunds á öllum stigum og innleiðingu nýju hæfniviðmiðanna. 

Dr. Sveinn Þorgeirsson, lektor við íþróttafræðideild

Dr. Sveinn Þorgeirsson, lektor við íþróttafræðideild HR og forstöðumaður ME-d námsins (Íþróttavísindi og kennsla), stendur að baki framtaksins: Við höfum fundið jákvæðan meðbyr með verkefninu í ár. Gæði umsókna hafa aukist og ég hef frétt af því að útfærslur sem kynntar hafa verið í hafa farið í notkun í fleiri skólum. Þannig finnst mér við hafa ná okkar markmiðum með auknum sýnileika íþróttakennarastarfsins og útbreiðslu á góðum starfsháttum,” segir Sveinn.  

Sérstök matsnefnd var sett saman til að fara yfir þær umsóknir sem bárust og veita umsögn og viðurkenninguna. Í matsnefnd í ár sátu fjórir íþróttakennarar í grunnskólum og voru því íþróttakennarar að meta störf kollega sinna. Í nefndinni sátu þau Hulda Bjarkar, íþróttakennari Réttarholtsskóla, Kjartan Stefánsson, íþróttakennari við Árbæjarskóla, Sigrún Bjarnadóttir, íþróttakennari við Varmárskóla og Þórunn Erlingsdóttir, íþróttakennari við Háteigsskóla.  

Hulda Bjarkar fór fyrir nefndinni í ár og segir umsóknirnar sem bárust í ár frábærar: Augljóst var að mikil vinna fór fram síðastliðið ár, bæði við það að innleiða ný hæfniviðmið aðalnámskrár og að efla íþróttastarf skólanna í heild sinni.Þegar fólk heyrir orðið „námsmat“ hugsa margir strax um prófarkalestur, skrifleg próf eða einkunnir á blaði. En við, íþróttakennarar, vitum að námsmat er svo miklu meira en það. 

Hulda Bjarkar

Í okkar fagi er námsmatið lifandi. Það á sér stað í hverju skrefi, hverju kasti og í hverri hreyfingu úti á gólfi. Við metum ekki bara hver hleypur hraðast eða kastar lengst, heldur metum við einnig framfarir, hugarfar og lífsleikni,” segir Hulda.  

Nefndin var sammála um það að íþróttakennarar hafi mikinn metnað fyrir námsmati sínu, bæði að hafa það sanngjarnt og hvetjandi. Þau horfa á það eins og góðan þjálfara sem sýnir nemendum hvar hann stendur og gefur honum tækifæri að komast lengra.  

Einnig er verið að lyfta faginu upp á hærra plan sem sýnir að íþróttir eru ekki bara „hvíld frá bókunum“, heldur lykilþáttur í heildstæðum þroska nemenda þar sem mat á framförum er faglega unnið og skýrt. 

Umsagnir dómnefndar:  

Engjaskóli 

Hjá Engjaskóla er litið á hreyfimennt sem eina heild þar sem íþrótta- og sundkennarar vinna sem öflugt teymi. 

Að mati nefndarinnar var það mjög skýrt í umsókn þeirra að unnið er vel með tengingu náms nemenda og hæfniviðmiða bæði þegar kemur að nýjum viðmiðum námskrár og einstaklingsmiðun.  

Þau fá góða endurgjöf frá kennurum sínum og námsmat er mjög skýrt.  

Íþróttakennarar sem fengu viðurkenningu voru þær Bergrós Arna Jóhannesdóttir, Hjördís Klara Hjartardóttir og Kristín Guðmundsdóttir. Þær vinna með leiðsagnarmat og samþættingu í námi á mjög skýran og uppbyggilegan hátt ýmist í gegnum verkefni eða leik.

  

Viðurkenningarhafar frá Engjaskóla

Sjálandsskóli  

Í Sjálandsskóla er vel ígrundað og vel skipulagt verkefni sem búið er að þróa með getu og hag nemenda fyrir brjósti. Í þessu verkefni sést skýrt hvernig búið er að taka nýju viðmiðin í námskránni um útivist og sníða þau að skólastarfinu. Þar var um frábæra útikennslu að ræða sem er til eftirbreytni. 

Íþróttakennarar sem fá viðurkenningu eru þau Guðrún Sigríður Pálsdóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Davíð Örvar Ólafsson og Úlfur S. Þórarinsson. Þau hafa sett fram mjög skýrt og lýsandi námsmat sem auðvelt er fyrir nemendur að staðsetja sig á.  

Viðurkenningarhafar frá Sjálandsskóla

Rimaskóli 

Í Rimaskóla er um verkefni að ræða sem styður nemendur í aukakennslu í sundi við að ná settum markmiðum. Þegar þeim viðmiðum hefur verið náð eru nemendur tilbúnir að takast á við hin hefðbundnu viðmið aðalnámskrár.  

Hér er um frábærlega vel skipulagt og útfært verkefni að ræða. Námsmat er skýrt bæði foreldrum og nemendum. Áfangamiðuð viðmið leiða nemendur áfram skref fyrir skref þar til aðal markmiðinu er náð, að útskrifast yfir í almenna bekkjarkennslu.  

Íþróttakennarar sem fá viðurkenningu eru þau Davíð Már Sigurðsson og Sigrún Blomsterberg. Þau hafa sett fram frábært kennslufyrirkomulag fyrir börn sem glíma við þætti eins og vatnshræðslu eða óöryggi í vatni þar sem þau finna fljótt fyrir framförum og hvata til að standa sig vel.  

Viðurkenningarhafar Rimaskóla

Tekin voru upp hlaðvörp um framtakið undir  Íþróttarabb HR” og eru viðtöl frá því í fyrra einnig aðgengileg hér

2. júní 2026
Nýjustu fréttirnar