Jón Haukur ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar við HR
Jón Haukur Arnarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar við Háskólann í Reykjavík. Hann hefur störf í upphafi árs 2023. Í verkahring rekstrarsviðs HR eru upplýsingatækni, fasteignir, Opni háskólinn í HR, fjölbreytt nemendaþjónusta og ýmis stoðþjónusta fyrir bæði nemendur og starfsfólk.
Framkvæmdastjóri rekstrar situr í framkvæmdaráði HR, ásamt sviðsforsetum, deildarforsetum, fjármálastjóra, mannauðsstjóra, formönnum náms- og rannsóknaráða, formanni Stúdentafélags HR og rektor háskólans.
Jón Haukur hefur undanfarin sjö ár verið sviðsstjóri rekstrarsviðs hjá Matís ohf. Árin 2008 til 2015 var hann rekstrarstjóri, mannauðsstjóri og verkefnastjóri hjá Matís. Áður var hann meðal annars yfirmaður rannsóknarstofu hjá Hilton Meats Retail Ltd. í Bretlandi, gæðastjóri hjá Coors Brewing Company í Colorado og sérfræðingur í bókhaldi hjá lífeyrisdeild Kaupþings.
Hann var stjórnarmaður hjá Marinox ehf. 2013-2015 sem sérhæfir sig í framleiðslu lífvirkra efna úr þangi og hefur verið stjórnarmaður síðan 2015 hjá UNA skincare sem vinnur að framleiðslu snyrtivara með lífvirkum innihaldsefnum úr þangi.
Jón Haukur lauk BSc-gráðu í matvælafræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og meistaragráðu í viðskiptafræði með áherslu á rekstrar- og gæðastjórnun frá HÍ og Colorado University at Boulder árið 2004. Hann lauk GMP-stjórnendaþjálfun við Harvard Business School árið 2015.
///
Jón Haukur Arnarson has been appointed Chief Executive of Operations (COO) at Reykjavík University. He will start at RU at the beginning of 2023. The scope of the RU operations department includes information technology, real estate, the Open University at RU, various student services, and various support services for students and staff.
The director of operations sits on the RU executive board, along with department presidents, department deans, the finance director, the human resources manager, directors of study and research council, the chair of the RU Student Association, and the university's president.
Dagsetning
Deila