Keppt um sæti til Barcelona í Vitanum
Setningarathöfn Vitans fór fram þann 11. febrúar síðastliðinn í Háskólanum í Reykjavík. Vitinn er hugmyndasamkeppni HR og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) sem snýst um að þróa og útfæra lausnir fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi.
Til máls tóku Dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, sviðsforseti tæknisviðs í HR, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, Haraldur Haraldsson, sölu- og markaðsstjóri Icelandair Cargo, Karl Hjármarsson, markaðs- og samskiptastjóri Iceland Seafood og Valdimar Sigurðsson, prófessor í viðskipta- og hagfræðideild HR. Rakel Gunnarsdóttir, verkefnastjóri viðburða í HR fór með fundarstjórn og eftir formlega dagskrá gafst þátttakendum tækifæri til að spyrja spurninga út í áskorunina og Iceland Seafood.

Í ár er metþátttaka í Vitanum en 10 lið taka þátt með 37 keppendur innanborðs. Liðin eru ýmist skipuð þátttakendum þvert á deildir eða úr sömu deild en það er einstaklega gaman að sjá hversu þvert á skólann þátttakendur eru. Vitinn er góður vettvangur fyrir nemendur til að stækka sitt tengslanet innan atvinnulífsins og meðal annarra nemenda.
Segir Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir, verkefnastjóri atvinnulífstengsla hjá HR en liðin vinna nú hörðum höndum að útfærslu lausna og verður spennandi að sjá útkomuna. Á morgun, laugardag, fá liðin tíu mínútur til að kynna sín verkefni fyrir dómnefnd. Að því loknu mun dómnefndin skera úr um vinningshafa Vitans 2026. Einnig verða veitt verðlaun fyrir frumlegustu hugmyndina.

Markaðssetja íslenskan lax
Í ár er það Iceland Seafood sem leggur fram áskorun Vitans og Valdimar Sigurðsson semur verkefni í kringum hana sem liðin takast á við. Fór hann yfir helstu þætti verkefnisins sem snýr að því að markaðssetja íslenskan lax sem hágæða og sérgreinda vöru á spænskum markaði.
Vinningshafar Vitans hljóta að launum ferð til Barcelona ásamt fulltrúum HR, þar sem fjölbreytt og spennandi dagskrá bíður þeirra. Í ferðinni fá nemendur einstakt tækifæri til að fylgja vörunni alla leið, frá útflutningi fisks frá Íslandi til dreifingar í Barcelona, áfram í verslanir og á veitingastaði þar sem afurðin endar loks á diskum neytenda. Á dagskrá eru meðal annars heimsóknir til samstarfsaðila Iceland Seafood, birgja, verslana og veitingastaða og fá nemendur þannig innsýn í allan virðiskeðjuna í raunverulegu umhverfi.
Vitinn hefur verið haldinn árlega síðan árið 2015 og er keppnin opin öllum nemendum HR, þvert á deildir í grunnnámi og/eða meistaranámi
Dagsetning
Deila