Konur og tækni í forgrunni á Jafnréttisdögum í HR
Jafnréttisdagar er árlegur viðburður með fyrirlestrum, umræðum og allskyns viðburðum sem tengjast jafnrétti og málefnum líðandi stundar. Viðburðirnir fara fram bæði í net-og raunheimum, eru ókeypis og standa öllum til boða. Jafnréttisdagar er samstarfsverkefni allra háskólana á Íslandi.
Í Háskólanum í Reykjavík verða spennandi og áhugaverðir fyrirlestrar í boði sem vert er að mæla með. Vinsamlegast athugið að skráning er nauðsynleg á einhverja viðburði.
Þriðjudag 10. febrúar:
Neurodiversity - Best Practices for Higher Education
Fyrst ber að nefna vinnustofu er ber heitið; Neurodiversity - Best Practices for Higher Education, sem leidd verður af Grischa Liebel, dósent við tölvunarfræðideild. Þar verður einblínt á vinnureglur í námi fyrir nemendur semr falla hvað best að taugafjölbreytileika. Verður útskýrt hvað einkennir taugafjölbreytileika og hvernig megi aðlaga kennslustundir í samræmi við hann fyrir nemendur. Mun vinnustofunni síðan ljúka með opnum umræðum.
Miðvikudagur 11. febrúar:
Gervigreind í þágu kynjajafnréttis
Þessi þverfaglega vinnustofa hefur það meginmarkmið að hefja samtal um hvernig megi hagnýta þau fjölbreyttu tækifæri sem felast í gervigreind til þess að sporna við því sem fjallað hefur verið um sem bakslag í jafnréttisbaráttu og afturför kynajafnréttis. Hugmyndafræðin byggir á hagnýtingu gervigreindar í þágu samfélagsins, í stað þess að einblína á þær samfélagslegu áskoranir sem hún felur í sér.
Vinnustofan verður fyrsti þáttur í vinnu sem byggir á breiðri aðkomu háskólasamfélagsins, hagsmunaaðila úr tæknigeiranum og fulltrúa frjálsra félagasamtaka sem vinna að jafnrétti kynjanna. Á vinnustofunni verða bæði fyrirlestrar og pallborðsumræður þar sem fólkið í salnum hefur tækifæri til að taka þátt í að móta framtíðarsýnina.
Þriðjudagur 10. febrúar:
Möguleikar fyrir konur á sviði gervigreindar
Sem hluti af nýstofnuðum Pan-European Women in AI vinnuhópi mun HR standa fyrir pallborðsumræðum og gagnvirkri vinnustofu þar sem rætt verður um það virði sem konur geta fært þróun gervigreindar og þau tækifæri sem tæknin getur skapað fyrir jafnrétti, heilsu kvenna og fleira. Viðburðurinn mun fela í sér pallborðsumræður og tækifæri til tengslamyndunar.
Women in AI vinnuhópurinn var stofnaður af European Digital Innovation Hub á Íslandi árið 2025 og nýtur að hluta til fjármögnunar frá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Markmiðið með hópnum er að tengja saman og efla konur á sviði djúptækni og gervigreindar.
Markmið þessa viðburðar er að skilgreina nánar stefnu hópsins og fá nýja meðlimi til liðs við hann. Öll eru velkomin að taka þátt í að móta með hópnum framtíð gervigreindar.
Mánudagur 9. febrúar:
Möguleikir:Leikjahönnun og framtíðarsýn
Möguleikir:Leikjahönnun og framtíðarsýn
Tölvuleikir gera okkur kleift að kanna ólíka möguleika og upplifanir með því að prófa nýjar reglur, hlutverk, og kerfi í gegnum leik og leikjaumhverfi. Erindið fjallar um hvernig hönnun leikja, ætluðum til skemmtunar eða samfélagslegra áhrif, getur gert slíka möguleika og framtíðarsýn áþreifanlega og skapað rými fyrir tilraunir og samtal.
Fyrirlesari er Elín Carstensdóttir, lektor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík sem stundar rannsóknir á leikjahönnun og sögugerð við CADIA, gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík.
Dagsetning
Deila