6. maí 2026
Kostuð meistaranámsstaða í íþróttavísindum og þjálfun í samstarfi við KKÍ
Laus er til umsóknar námsstaða í meistaranámi í íþróttavísindum og þjálfun (MSc) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík.
Staðan er kostuð af Háskólanum í Reykjavík (HR) og Körfuknattleikssambandi Íslands (KKÍ) og mun nemandi ekki greiða skólagjöld meðan á námstíma stendur.
Umsóknarfrestur er til 22. maí og mun nemandi hefja nám strax á haustönn, samkvæmt skóladagatali.
Skuldbindingar nemanda eru eftirfarandi:
- Nemandi skuldbindur sig til að gera meistaraverkefni sem tengist landsliðum Íslands í körfuknattleik. Nemandi skrifar lokaritgerð í nánu samstarfi við leiðbeinanda (akademískan starfsmann HR), þjálfarateymi landsliða og KKÍ. Nemandi skuldbindur sig jafnframt til þess að kynna niðurstöður meistaraverkefnisins samkvæmt óskum KKÍ.
- Nemandi skuldbindur sig til þess að sjá um mælingar á yngri landsliðum í körfuknattleik undir handleiðslu þjálfarateymis landsliðanna og kennara íþróttafræðideildar HR á meðan námstíma stendur.
- KKÍ og þjálfarateymi þeirra geta óskað eftir því að nemandi sjái um ráðgjöf er varðar líkamlega þjálfun fyrir leikmenn landsliða Íslands. Slík ráðgjöf yrði alltaf í nánu samstarfi við þjálfarateymi og undir handleiðslu kennara íþróttafræðideildar HR.
- Nemandi leitast eftir því að vinna eins mörg verkefni á námstíma og mögulegt er í tengslum við landsliðin og veita þjálfarateymi aðgang að verkefnum sínum. Dæmi um slíkt væri að gera frammistöðugreiningu á A-landsliðið kvenna í námskeiðinu Frammistöðugreining í íþróttum. Þá er nemandi skuldbundinn til að ljúka 10 ECTS eininga verknámi hjá KKÍ sem hluta af námi sínu.
- Nemandi skuldbindur sig til að halda eðlilegri námsframvindu og mæta samviskusamlega í kennslustundir ásamt því að taka þátt í kynningarstarfi á vegum HR, sé þess óskað. Dæmi um slíkt væri viðvera á Háskóladeginum, UTmessu og/eða Vísindavöku.
Umsóknir og fyrirspurnir skulu berast á tölvupósti til
Hjalta Rúnars Oddssonar og Hafrúnar Kristjánsdóttur.
Dagsetning
6. maí 2026
Deila