Leiðir til að bæta lífsgæði fólks sem verður fyrir heilaáverkum
Fyrirlestur á vegum sálfræðideildar í tilefni 25 ára afmælis HR var haldinn í síðustu viku. Fyrirlesari var Kristen Dams-O'Connor, forstöðukona rannsóknarseturs um heilaáverka við Mount Sinai-sjúkrahúsið í New York og fjallaði hún um áhrif heilaáverka og leiðir til að bæta lífsgæði þeirra sem verða fyrir alvarlegum heilaáverkum.
Brynja Björk Magnúsdóttir, dósent við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík, segir fyrirlestur Dams-O'Connor vera mikilvægt innlegg í faglega umræðu um áhrif heilaáverka.
Prófessor Dams-O´Connor hefur verið leiðandi í rannsóknum á heilaáverkum og áhrifum þeirra og var fyrirlestur hennar vel sóttur, bæði af fagfólki sem sinnir greiningu og mati á fólki með heilaáverka, sem og vísindafólki innan Háskólans í Reykjavík og við Háskóla Íslands. Umræða um áhrif heilaáverka, sérstaklega í tengslum við íþróttir, hefur aukist miki á síðustu árum hér á landi og var fyrirlestur hennar mikilvægt innlegg í faglega umræðu um áhrif heilaáverka.

Áverkatengdum heilaskemmdum (chronic traumatic encephalopathy (CTE) var fyrst lýst eftir krufningar á heilum fyrrverandi atvinnumanna í amerískum fótbolta fyrir meira en15 árum. Síðan þá hafa frásagnir af áverkaheilabilun meðal fyrrverandi atvinnuíþróttafólks verið vinsælar. Vísindunum þarna að baki hefur minna verið haldið á lofti og því hafa þessar umræður stundum byggst á misskilningi og gefið villandi mynd. Um leið hafa umtalsverðar rannsóknir leitt til aukinnar þekkingar á áverkatengdri heilahrörnun. Í fyrirlestrinum fjallaði Kristen um helstu rannsóknir á langtímaáhrifum heilaáverka og fjallaði um leiðir til að bæta lífsgæði þess hóps.
///
A 25th-anniversary lecture from the department of psychology at Reykjavík University was held last week. The guest speaker was Kristen Dams-o´connor, a clinical neuropsychologist and a professor in the Departments of Rehabilitation Medicine and Neurology at Icahn School of Medicine at Mount Sinai in New York.
Kristen is also the Director of the Brain Injury Research Center of Mount Sinai, a centre that has been leading in developing research-based diagnoses and treatments after traumatic brain injury. Kristen has received numerous awards for her research work and has published over 150 research papers.
In her lecture, Kristen gave guests an overview of the current state of knowledge of the long-term effects of traumatic brain injury and its implications for clinical care.
Dagsetning
Deila