Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
8. maí 2026

Lögfræðingar og tölvunarfræðingar eiga margt sameiginlegt

Ráðstefnan Lög og tækni – bilið brúað: Djúpfölsun, hlutdrægni og mismunun, var haldin á vegum laga- og tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík þann 6. maí. Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, opnaði viðburðinn og að því loknu tóku við fimm fyrirlesarar. Var dagskráin sem hér segir:

  • Aðalfyrirlesari: Viðar Pétur Styrkársson-Lærdómur úr heimi gervigreindar
  • Bilið brúað: Djúpfalsanir, Dr. María Rún Bjarnadóttir (lögfræði). Engar áhyggjur, þetta er bara djúpfalsað, Dr. Elín Carsteinsdóttir (gervigreind)
  • Bilið brúað: Hlutdrægni og mismunun-Dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson (lögfræði)
  • Gervigreind og jafnræði: Dr. Stefán Ólafsson (gervigreind-Líkönin læra það sem fyrir þeim er haft: afleiðingar bjaga og lausnir
Mikilvægt að sviðin tvö séu á sömu blaðsíðu

Innan HR starfa ótal sérfræðingar á svið tölvunar- og lögfræði og því mikilvægt að leiða sviðin tvö saman enda einblínt á að deildirnar séu leiðandi á sínu sviði. Innan deildanna eru stundaðar framúrskarandi rannsóknir á gervigreind og fylgst vel með þróun hennar á heimsvísu.

Henning Arnór Úlfarsson, deildarforseti tölvunarfræðideildar.

Það er mikilvægt að fá lögfræðinga fyrr að borðinu við hugbúnaðarþróun og eins að sviðin tvö séu á sömu blaðsíðu hvað varðar regluverk, mannréttindi og siðferði. Með ráðstefnunni var stigið mikilvægt skref í því að vekja athygli á nauðsyn þess að auka þverfagleika þegar kemur að rannsóknum á sviði gervigreindar. Við þróun gervigreindar er t.a.m. mikilvægt að tölvunarfræðingar skilji regluverk á borð við persónuvernd til að auðveldara sé að framfylgja því.

Segir Henning Arnór Úlfarsson, deildarforseti tölvunarfræðideildar.

Gunnar Þór Pétursson, deildarforseti lagadeildar.

Viðburðurinn var mjög vel sóttur og virkilega gaman að sjá fjölbreyttan hóp úr atvinnulífinu og fræðasamfélaginu. Lögfræðingar og tölvunarfræðingar eiga margt sameiginlegt og greinilegt að hugur er á virkara samtali. Við eigum því mikið inni.

Segir Gunnar Þór Pétursson, deildarforseti lagadeildar.

8. maí 2026
Nýjustu fréttirnar