Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
29. mars 2023

Magnavita námið // Áhugavert nám um það sem skiptir máli í lífinu og á þriðja æviskeiðinu

„Magnavita námið er mjög áhugavert og ég hlakka til að mæta í hvert skipti. Námið kynnir fyrir manni ný sjónarhorn og fær mann til að hugsa um nýja hluti,“ segir Sigurjón Gunnarsson sem hefur starfað sem tölvunarfræðingur síðastliðin fjörtíu ár.

Eldri maður í grárri peysu stendur við stigahandrið.Tengingar við stofnendur Magnavita námsins urðu til þess að Sigurjón fór í það en ástæðan var þó fyrst og fremst sú að honum fannst námið svo áhugavert. „Ég er kominn á aldur og er að minnka við mig vinnu. Þá fer maður að hugsa um hvað tekur við og þarna virtist vera fullt af áhugaverðum námskeiðum um það sem skiptir máli í lífinu og á þriðja æviskeiðinu.“

Magnavita námið er eins árs nám sem er fjárfesting í framtíðinni. Í því setja nemendur sér stefnu og markmið fyrir þriðja æviskeiðið, til þess að skipuleggja innihaldsríkt líf og fjölga góðum, spennandi og heilbrigðum æviárum.

Magnavita námið er ætlað fólki á aldrinum 55 til 75 ára. Námið samanstendur af tíu námskeiðum, hvert og eitt þeirra er umbreytandi fyrir nemendur. Nálgunin er jákvæð, spennandi og uppbyggileg, hún er líka heildstæð og byggir á gagnreyndri þekkingu.

Hér má lesa nánar um Magnavita námið

//

Sigurjón Gunnarsson, a computer scientist, says that the Magnavita program at Reykjavik University is very interesting and that he looks forward to attending every class. "The program introduces you to new perspectives and makes you think about new things," he says.

The Magnavita program is a one-year program investment in the future. Students set a strategy and goals for the third period of their lives to plan a meaningful life and increase the number of good, exciting, and healthy years of life. The Magnavita program is intended for people between 55 and 75. The program consists of ten courses, each transformative for students. The approach is positive, exciting, and constructive.

29. mars 2023
Nýjustu fréttirnar