Magnavita námið // Í náminu gerast galdrar
Björk Håkonsson fór í Magnavita námið í Opna háskólanum í HR til að læra hvernig hún gæti fengið það besta úr þriðja æviskeiðinu, aukið líkurnar á góðri heilsu, tryggt fjármálin og fundið tilgang.

"Mig langaði til að takast á við hugmyndafræði þriðja æviskeiðsins á faglegan og praktískan hátt og um leið vera hluti af hópi með mikla reynslu. Við erum öll í þessu námi af því við völdum það og ætlum að gera okkar besta. Nú er komið að því að hanna skemmtileg, lærdómsrík og skapandi ár,“ segir Björk og bætir við að hún hafi alltaf verið staðráðin í því að undirbúa þriðja æviskeiðið vel.
Björk hefur búið í níu löndum um allan heim við bæði vinnu og nám. Hún hefur unnið við að stýra flóknum og krefjandi verkefnum á sviði alþjóðasamskipta hjá ríki, sveitarfélögum og alþjóðastofnunum með áherslu á flæði fólks milli landa. "Á ferðum mínum um heiminn hef ég mjög oft staðið mig að því að skoða aðbúnað eldra fólks og óhikað tekið spjallið við heimamenn um hvernig er að eldast þar sem þeir búa."
Björk er ennþá á vinnumarkaði og segist hún vel geta nýtt sér margt úr náminu í starfi sínu við að leiðbeina fólki til heilla.
Ég vil hafa skýra sýn og markmið, bæði starfa- og verkefnalega séð. Ég vil láta drauma mína rætast og þekkja minn tilgang. Þegar safnað er saman fólki á aldursbilinu 55-75 ára sem hefur ákveðið að fá það mesta út úr lífinu eins og er hér í Magnavita náminu gerast galdrar. Það er mikil reynsla hjá bæði nemendum og kennurum. Kennsla, námsgögn og aðstaða eru í hæsta gæðaflokki. Námsskráin er metnaðarfull og bestu fáanlegu sérfræðingar leiða lotur. Námið hefur staðist væntingar mínar og gott betur. Ef þú vilt taka ábyrgð á eigin heilsu, fjármálum og síðast en ekki síst skilja og fá tilgang inn í þriðja æviskeiðið þá er Magnavita rétti staðurinn fyrir þig.
Magnavita námið er eins árs nám sem er fjárfesting í framtíðinni. Í því setja nemendur sér stefnu og markmið fyrir þriðja æviskeiðið, til þess að skipuleggja innihaldsríkt líf og fjölga góðum, spennandi og heilbrigðum æviárum.

Magnavita námið er ætlað fólki á aldrinum 55 til 75 ára. Námið samanstendur af tíu námskeiðum, hvert og eitt þeirra er umbreytandi fyrir nemendur. Nálgunin er jákvæð, spennandi og uppbyggileg, hún er líka heildstæð og byggir á gagnreyndri þekkingu.
Hér má lesa nánar um Magnavitanámið
///
Björk Håkonsson enrolled in the Magnavita program at Open University in RU to maximize her potential in the third period of her life. Her goals were to improve her health, secure her finances, and find purpose. By taking this program, she aimed to delve into the philosophy of this stage of life professionally and practically. Additionally, she wanted to be a part of a group of experienced people.
"I am eager to be part of a group of like-minded individuals who have chosen this path and are committed to doing their best. I am determined to prepare well for this next phase of my life, and the Magnavita program offers a fun, educational, and creative platform to achieve my goals," Björk expressed.
Overall, Björk is excited to take on this next chapter of her life with the knowledge and skills she will acquire from this program.
The Magnavita program is a one-year program investment in the future. Students set a strategy and goals for the third period of their lives to plan a meaningful life and increase the number of good, exciting, and healthy years of life. The Magnavita program is intended for people between 55 and 75. The program consists of ten courses, each transformative for students. The approach is positive, exciting, and constructive.
Dagsetning
Deila