Magnús Már Halldórsson nýr formaður námsráðs
Magnús Már Halldórsson, prófessor í tölvunarfræðideild, er nýr formaður námsráðs HR. Hann tekur við af Hönnu Steinunni Steingrímsdóttur, dósent í sálfræðideild, sem gegnt hefur því hlutverki síðast liðin tvö ár.

Megintilgangur námsráðs HR er að fjalla um málefni er tengjast kennslu og námi á grunn- og meistarastigi. Ráðið er skipað fulltrúum allra deilda og háskólagrunns auk formanns, einnig sitja fundina gæðastjóri náms og kennslu og starfsmaður kennsluþróunar. Fulltrúi nemenda, tilnefndur af Stúdentafélagi HR, situr einnig fundi námsráðs. Fulltrúi nemenda talar fyrir hagsmunum nemenda og skýrir stúdentafélaginu frá vinnu ráðsins.
Ráðið heyrir undir aðstoðarrektor náms, nemenda og sjálfbærni, í umboði rektors. Formaður námsráðs er skipaður af rektor til tveggja ára í senn. Nánari upplýsingar um námsráð HR má lesa hér.
Dagsetning
Deila