Meistaranám í viðskiptafræði // Þverfagleg þekking og praktískt nám
Höskuldur Gunnlaugsson knattspyrnufyrirliði og meistaranemi

Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði hjá Íslandsmeistaraliði Breiðabliks í knattspyrnu og rekur einnig Gamla Bakstur.
Höskuldur Gunnlaugsson er 28 ára gamall nemandi við Háskólann í Reykjavík. Auk þess að vera meistaranemi við HR er hann fyrirliði hjá Íslandsmeistaraliði Breiðabliks í knattspyrnu og rekur lítið heildsölubakarí sem heitir Gamli Bakstur. Hann lauk grunnnámi í viðskiptafræði (B.Sc) haustið 2021 og stundar nú meistaranám í viðskiptafræði.
Viðskiptafræðinámið hefur klárlega hjálpað mér í þessari vegferð minni að stofnun og rekstur eigin fyrirtækis. Það hefur verið lærdómsríkt ferli þar sem ég hef þurft að takast á við ýmsar áskoranir og öðlast dýrmæta reynslu á sviði vörustjórnunar, sölu- og markaðsmála, samningagerðar, bókhalds og gerð viðskiptaáætlunnar, svo eitthvað sé nefnt. Ég hef litið svo á að með því að reka eigið fyrirtæki samhliða viðskiptafræðináminu hef ég brúað bilið milli akademíska heimsins og þess viðskiptalega. Þessir heimar hafa stutt við hvorn annan og veitt mér dýrmæta, krefjandi en jafnframt skemmtilega reynslu.

Höskuldur mælir hiklaust með náminu fyrir aðra og segir það henta vel með starfi og daglegu lífi.
Hann segir námið hafa reynst sér vel og hann hafi öðlast heildstæða þekkingu mína á viðskiptafræðinni líkt og hann vonaðist eftir. Hann mælir hiklaust með náminu fyrir aðra og segir það henta vel með starfi og daglegu lífi.
Stefnan hjá mér var alltaf að fara í meistaranám og þar sem ég hafði frábæra reynslu af grunnnáminu ákvað ég að halda áfram námi við HR. Fyrir mér var mikilvægt að velja meistaranám sem myndi gera mér kleift að tvinna saman ólík fræðisvið innan viðskiptafræðinnar og gæfi mér heildstæða þekkingu á henni. Því valdi ég meistaranám í viðskiptafræði og hef haft nokkuð mikinn sveigjanleika til þess að velja fjölbreytt námskeið, utan skylduáfanga, og þannig sniðið námsleiðina að miklu leyti að mínu áhugasviði. Auk þess hef ég tekið valnámskeið úr öðrum deildum skólans sem hefur hjálpað mér að auka þverfaglega þekkingu mína. Fyrir utan praktískt gildi námsins, þá er aðstaðan í skólanum til fyrirmyndar, reynsla mín af kennurunum frábær, samnemendur mínir skemmtilegir, fjölbreyttir og metnaðarfullir. Þannig er allt umhverfið í kringum námið uppbyggjandi og hvetjandi fyrir mann. Auk þess er sérstaklega vert að nefna að námið hefur hentað mér vel með tilliti til þess að ég er einnig að spila fótbolta á efsta stigi á Íslandi og rek lítið fyrirtæki. Þannig námið hentarvel þeim sem eru til dæmis í vinnu samhliða.
Höskuldur stefnir á að spila knattspyrnu á efsta stigi áfram næstu árin og samhliða því að halda áfram að mennta mig. Hann segist sjá það sem tækifæri að geta stundað nám samhliða boltanum þar semvinnutíminn er ekki hefðbundinn.
Þannig að það er ekki ólíklegt að á meðan ég er ennþá að sparka í tuðruna, vonandi í mörg ár í viðbót, að ég haldi áfram að mennta mig.
Meistaranám í viðskiptafræði hentar þeim sem vilja tvinna saman ólík fræðasvið. Nemendum gefst kostur á starfsnámi, valnámskeiðum sem auka þverfagleika námsins eða skiptinámi við erlendan samstarfsskóla. Meistaranám í viðskiptafræði hentar þeim sem vilja tvinna saman ólík fræðasvið. Nemendum gefst kostur á starfsnámi, valnámskeiðum sem auka þverfagleika námsins eða skiptinámi við erlendan samstarfsskóla.
Umsóknarfrestur um meistaranám er til 30. apríl.
///
Höskuldur Gunnlaugsson is a 28-year-old student at Reykjavík University. In addition to being a master's student at HR, he is also the captain of Breiðablik soccer team and runs a small wholesale bakery called Gamli Bakstur. He completed his bachelor's degree in business administration (B.Sc) in the fall of 2021 and is currently pursuing a master's degree in business administration.
The business studies course has definitely helped me on my journey to establishing and running my own company. It has been a learning process as I have had to face various challenges and gain valuable experience in the areas of product management, sales and marketing, negotiation, accounting and business planning, to name a few. My studies and running a company have supported each other and provided me with valuable and challenging yet enjoyable experiences.
The application deadline for master's programmes is April 30th.
Here you can read more about the master´s programs
Dagsetning
Deila