Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
29. október 2026

Menntasveigur lokar 30. október og strætóstoppistöð HR flytur

Frá og með 30. október lokar Menntasveigur fyrir umferð vegna Borgarlínuframkvæmda. Strætóstoppistöð HR flyst að rútubílastæðunum við hringtorgið nærri aðalinngangi. Aðkoma að HR er óbreytt.

Nýr áfangi Borgarlínuframkvæmda við Nauthólsveg hefst föstudaginn 30. október. Verkið er samstarfsverkefni Betri samgangna, Reykjavíkurborgar og Veitna. Verktaki er Grafa og grjót ehf. og verkfræðistofan Efla hefur eftirlit með verkinu.

Strætó

Strætóstoppistöðin við Menntasveig fer úr notkun og ný stöð tekur við nálægt rútubílastæðunum við hringtorgið nærri aðalinngangi. Flutningurinn tekur gildi 30. október.

Ný stoppistöð tekur við hringtorgið nærri aðalinngangi HR.

Fjöldi ferða leiðar 8 hefur jafnframt verið aukinn og gengur leið 8 nú á 10 mínútna fresti á virkum dögum þegar umferð er mest og tengir HR við Háskóla Íslands og miðborgina.

Sjá frekari upplýsingar á heimasíðu Strætó.

Menntasveigur og bílastæði

Menntasveigur er lokaður fyrir umferð á meðan framkvæmdir standa yfir. Ný innkoma verður að malarbílastæðunum við Menntasveig þar sem strætóstoppistöðin var og tekur sú breyting gildi 30. október.

Ný aðkoma inn á malarbílastæði vegna framkvæmda við Borgarlínu
Aðgengi

Aðgengi fyrir akandi, hjólandi, gangandi og almenningssamgöngur verður tryggt allan framkvæmdatímann með hjáleiðum. Ein akrein í hvora átt er opin eins og verið hefur.

Yfirlitsmynd af lokunum og færslum

Hægt er að hafa samband í tölvupósti á netföngin: borgarlinan@borgarlinan.is eða upplysingar@reykjavik.is

29. október 2026
Nýjustu fréttirnar